Þörf er á tafarlausum aðgerðum á flóðasvæðunum ef bjarga á börnunum frá misnotkun, vændi og ofbeldi, og til að koma í veg fyrir að þau gleymist, samkvæmt fréttum frá aðalstöðvum UNICEF þann 8. janúar. UNICEF skipuleggur lykilaðgerðir sem nauðsynlegar eru til að vernda munaðarleysingja og önnur börn.
„Góðu fréttirnar eru þær að stærsta hjálpin er þegar á leiðinni,“ segir framkvæmdarstjóri UNICEF, Carol Bellamy. „En við verðum að vera fljót,“ bætir hún við. „Þeir sem vilja notfæra sér þetta stjórnlausa ástand eru þegar byrjaðir.“
Engar marktækar tölur fyrirfinnast en talið að þúsundir barna á hamfarasvæðunum séu munaðarlaus eða viðskila við fjölskyldur sínar. Tölurnar eru þó að hluta byggðar á fjölda látinna fullorðinna og ófundinna. Verið er að vinna að rannsóknum til að meta umfang hamfaranna, en þær verða birtar eftir viku eða svo.
UNICEF gefur upp fimm lykilatriði sem eiga að hjálpa til við að vernda börnin á svæðunum frá misnotkun sem fyrst.
• Skrásetning allra barna sem eru viðskila við fjölskyldu sína: Vitneskja um hvaða börn eru ein og hugsanlega munaðarlaus og hvar þau eru niðurkomin er fyrsta og mikilvægasta skrefið í að vernda þau, segir UNICEF. Á Indlandi, Sri Lanka og í Indónesíu, sem kom verst út úr hamförunum, er skráning í undirbúningi. Í Aceh-héraði hafa fimm skrásetningarmiðstöðvar fyrir börn verið opnaðar í búðunum og áætlað er að opna 15 til viðbótar í næstu viku.
• Séð um að útvega öruggt umhverfi sem fyrst. Börn sem eru án fylgdar foreldra eða týnd, verða að vera sett í tímabundið fóstur fullvaxta einstaklings sem ber ábyrgð á þeim. Í neyðarbúðum verða sérstakar barnvænar búðir settar upp fyrir munaðarlaus börn. Einnig á að vera hægt að koma börnunum fyrir á fósturheimilum þangað til fjölskyldur þeirra finnast. Gripið hefur verið til þessa úrræða í öllum löndunum.
• Leitað að ættingjum: Skrásetning barna með nafni, heimilisfangi, héraði og fæðingardegi hjálpa yfirvöldum í samvinnu við frjáls félagasamtök að hafa upp á eftirlifandi fjölskyldumeðlimum. Skrásetningin hjálpar jafnframt yfirvöldum að finna aðra ættingja s.s frænkur og frændur, afa og ömmur o.s.frv.
• Lögreglu og yfirvöldum gert viðvart: UNICEF segir að það sé mjög mikilvægt að lögreglan, landamæraverðir, kennarar og fleiri séu upplýstir um hættuna á barnamisnotkun þannig að þessar stéttir geti að fullu aðstoðað við að vernda börnin. Opinber og stjórnsýsluleg vakning um öryggi barnanna er að eiga sér stað í viðkomandi löndum. Í Sri Lanka hefur ríkisstjórnin og aðrir lykilaðilar að UNICEF meðtöldu, vakið upp umræður um efnið í fjölmiðlum þannig að íbúar Sri Lanka eru orðnir meðvitaðir um þörfina á að fylgjast með börnum sem eru ein á ferð. Í Indónesíu hefur lögreglunni og hafnaryfirvöldum verið gert sérstaklega viðvart.
Alþjóðlegar kröfur í hamfaraástandi eru að halda börnum eins nálægt fjölskyldu sinni og samfélagi og hægt er, segir UNICEF. Yfirleitt er betra fyrir börnin að vera hjá ættingjum þó fjarskyldir séu en að vera rifin upp með rótum úr sínu umhverfi.
„Fjölskyldan og samfélagið eiga að sjá um að vernda börnin,“ segir Bellamy. „En þegar svona margar fjölskyldur eru brotnar og svona mörg samfélög algjörlega eyðilögð þá verðum við standa saman og finna aðrar lausnir til að vernda litlu börnin. Allar góðviljaðar manneskjur hafa hlutverki að gegna við að líta eftir hagsmunum flóðbylgju-kynslóðarinnar.“
Carol Bellamy lagði áherslu á að mansal barna, kynferðisleg misnotkun og barnaþrælkun væru engar nýjar fréttir. En varaði jafnframt við að algjört niðurbrot stofnanna í kjölfar hamfaranna skyldu eftir op fyrir samviskulausa og glæpsamlega misnotkun á þeim viðkvæmustu. Hún sagði ennfremur að ólögleg sala á manneskjum væri stór gróðalind, líkt og vopnasala og dópsala, með alvöru peningum og valdamiklum hagsmunum að veði.
„Við þurfum að vilja að vernda börnin jafnmikið og aðrir eru tilbúnir að notfæra sér þau,“ segir Bellamy. „Yfirvöld hafa sýnt fram á það, með snöggum viðbrögðum, að þau eru tilbúin til að bregðast við þessari hættu og veita vernd. En við verðum að vinna saman.“
Nánari upplýsingar eftir löndum:
INDÓNESÍA UNICEF og stjórnvöld hafa gripið til aðgerða til að draga úr þeim þáttum sem ógna öryggi barna í kjölfar hamfaranna.
-Börn undir 16 ára aldri í Aceh fá ekki að fara úr landi
-Fylgst er með flugvöllum og höfnum í N-Súmötru og Aceh
-Fylgst með ættleiðingum. Yfirvöld leyfa ekki ættleiðingar fyrr en staðfest er að foreldrar barnsins hafi dáið. Sömuleiðis er fjölskyldum í Aceh gefinn forgangur ef þau vilja ættleiða svo að börn verði ekki tekin úr sínu menningarlega og félagslega umhverfi.
-Yfirmaður lögreglunnar í landinu sendi út skipun sl. mánudag um að lögreglan skyldi hafa auga með flutningi barna frá Aceh og allri grunsamlegri hegðan
-Ríkisstjórnin hefur komið munaðarlausum börnum fyrir á heimilum í Medan og öðrum borgum Súmötru
-Fjölskyldur í Aceh hafa verið fengnar til að taka að sér munaðarlaus börn eða börn sem hafa orðið viðskila við foreldra sína þangað til framtíðarlausn finnst fyrir barnið eða þar til fjölskylda þess finnst. Þá er það ekki tekið úr sínu venjulega umhverfi.
-UNICEF vinnur að því að opna miðstöðvar fyrir munaðarlaus börn þar sem þau geta dvalið, leikið sér og fengið hjálp. 20 stöðvar verða opnaðar á næstu dögum nálægt neyðarbúðum í Aceh.
Skráningarblöðum hefur verið dreift í héraðinu
TÆLAND
Yfirvöld í Tælandi hafa ekki staðfest að börnum hafi verið rænt þar í kjölfar hamfaranna.
Gripið hefur verið til sérstakra aðgerða til að koma í veg fyrir það.
-Skrásetning barna
-Að veita vernd og skjól fyrir börn sem hafa orðið viðskila við foreldra sína
-Bera kennsl á börnin og finna ættingja þeirra
-Ríkisstjórnin lítur ekki á ættleiðingu munaðarlausra barna sem möguleika í augnablikinu.
-Sjálfboðaliðar sjá um vernd
UNICEF hefur varað ríkisstofnanir og samtök um yfirvofandi ógn, og vinna í flestum héruðum landsins með samfélögunum til að tryggja skrásetningu barna og vernd þeirra. Einnig er nauðsynlegt að fjölmiðlar fylgist grannt með málefnum sem varða vernd barna, sérstaklega ef þeim er rænt og þau misnotuð í aðstæðum sem þessum.
MALASÍA
UNICEF í Malasíu hefur fengið óstaðfestar fregnir um það að einstaklingar í Malasíu taki þátt í mannsali barna á Súmötru. Upplýsingarnar komu í gegnum SMS skilaboð sem var á þá leið að hægt sé að ættleiða börn sem voru orðin munaðarlaus eftir flóðin. UNICEF er í samstarfi við yfirvöld í Malasíu, félagsmálaráðuneytið, innflytjendaeftirlitið og fleiri til að koma í veg fyrir að börn séu seld til Malasíu.
Skólar voru opnaðir 4. janúar í Malasíu og Tælandi.
SRI LANKA
850 þúsund manns eru í neyðarbúðum. 36% af þjóðinni er undir 18 ára og má því ætla að 300 þúsund börn séu heimilislaus.
Fyrir hamfarirnar var mansal á börnum aðallega innanlands og á fátækum börnum, oft frá norðanverðu landinu, og þau notuð í barnaþrælkun á heimilum. Það voru tilvik um að þau voru hafi verið notuð í klámiðnaði, sérstaklega á túristasvæðunum. Skýrslan um þetta var áætluð frá UNICEF árið 2005.
Engar tilkynningar hafa borist um skipulagða starfsemi á mansali á börnum í kringum neyðarbúðirnar. Þó hefur UNICEF heyrt af slíkum ásökunum í fjölmiðlum og er mjög umhugað um að koma í veg fyrir að glæpamenn nýti sér neyð barna á þennan hátt. UNICEF mun aðstoða stjórnvöld í þessum málum.
Hvort hægt sé að koma í veg fyrir slíka glæpi fer eftir því hvernig neyðarbúðir eru uppbyggðar og hvort löggæsluyfirvöld hafi verið sett á staðinn til að tryggja öryggi íbúanna.
Barnaverndaryfirvöld á svæðinu hafa sagst ætla að setja strangari lög sem tryggja á vernd og réttindi barna, en UNICEF hefur unnið að því á Sri Lanka áður en hamfarirnar áttu sér stað.
-UNICEF er að gera grófa áætlun á hversu mörg börn séu án forræðismanns í búðum eða sem eru í óöruggri aðstöðu vegna hamfaranna. Þær tölur ættu að koma í næstu viku.
-UNICEF mun forma kerfi sem gerir fjölskyldum á Sri Lanka kleyft að ættleiða börn sem þau eru skyld eða sem búa nálægt þeim stað sem barnið kemur frá.
-UNICEF Sri Lanka segir að auðveldara sé að fylgjast með þeim sem ferðast til eyjunnar vegna þess hve fáir túristar séu á svæðinu eins og er.
