13. maí 2020

Sex þúsund börn aukalega gætu látið lífið á dag vegna álags COVID-19 á heilbrigðiskerfi

Álagið sem COVID-19 heimsfaraldurinn setur á heilbrigðisstofnanir og grunnþjónustu þjóða gæti kostað aukalega 1,2 milljónir barna undir fimm ára lífið á næstu sex mánuðum. Þetta er niðurstaða nýrrar greiningar frá Johns Hopkins Bloomberg School of Public Health

13. maí 2020 Álagið sem COVID-19 heimsfaraldurinn setur á heilbrigðisstofnanir og grunnþjónustu þjóða gæti kostað aukalega 1,2 milljónir barna undir fimm ára lífið á næstu sex mánuðum. Þetta er niðurstaða nýrrar greiningar frá Johns Hopkins Bloomberg School of Public Health sem birt hefur verið í læknaritinu The Lancet Global Health journal.

Greiningin nær til 118 lág- og millitekjuþjóða þar sem verstu spár gera ráð fyrir þessum tölum. Eru þá ekki talin með þær 2,5 milljónir barna sem láta lífið að jafnaði í þessum löndum fyrir fimm ára aldur á sama tímabili.

Allt þetta vegna samdráttar í hefðbundinni heilbrigðisþjónustu og aukinnar vannæringar barna.

„Svörtustu spár gera ráð fyrir því að fjöldi barna undir fimm ára aldri sem lætur lífið gæti aukist í fyrsta skipti í áratugi,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF. „Við megum ekki sætta okkur við það að mæður og börn þurfi að gjalda fyrir þetta ástand með lífi sínu. Við megum heldur ekki glata niður þeim árangri sem náðst hefur í að bjarga börnum og barnshafandi konum frá því að deyja úr einhverju sem vel er hægt að koma í veg fyrir,“ bætir Fore við.

Eins og greint hefur verið frá þá er heimsfaraldur COVID-19 að setja mikið álag á veikburða heilbrigðiskerfi fjölmargra þjóða. Og líkt og UNICEF hefur óttast, geta afleiðingarnar verið skelfilegar.

Í greiningunni eru þrjár sviðsmyndir skoðaðar og í þeirri verstu er áætlað að aukalega geti um 6 þúsund börn undir fimm ára aldri látið lífið á dag næstu sex mánuðum vegna ástandsins miðað við 45 prósenta samdrátt í þjónustu.

Í bestu sviðsmyndinni, þar sem miðað er við 15 prósenta samdrátt í þjónustu, er sá fjöldi 1.400 börn á dag auk þess sem mæðradauði myndi aukast um 8,3 prósent.

Í tilkynningu lýsir UNCIEF yfir þungum áhyggjum af þessu sem og öðrum afleiddum áhrifum heimsfaraldursins á börn. Tökum dæmi:

  • 1,3 milljarður nemenda eru ekki í skóla vegna lokana í 177 löndum.
  • 40 prósent jarðarbúa, ríflega þrír milljarðar, geta ekki þvegið hendur sínar með sápu og vatni á heimili sínu.
  • Nærri 370 milljónir barna í 143 löndum, sem reiða sig á skólamáltíðir til að fá daglega næringu, fara nú ýmist á mis við nauðsynlega næringu eða þurfa að leita annarra leiða til að fá hana.
  • Frá og með 14. Apríl síðastliðnum gætu 117 milljónir barna í 37 löndum farið á mis við skipulagða bólusetningu gegn mislingum þar sem margar slíkar herferðir þurfti að stöðva vegna smithættu í tengslum við COVID-19.

UNICEF ætlar í þessari viku af stað með alþjóðlegt átak undir yfirskriftinni #Reimagine til að leggja áherslu á áframhaldandi baráttu stofnunarinnar gegn því að afleiðingar COVID-19 verði varanlegar fyrir börn. Til þess þarf UNICEF stuðning.

„Þessi COVID-19 krísa er barnaréttindakrísa. Við þurfum að bregðast við núna og til langs tíma til að takast á við þær áskoranir sem faraldurinn og afleiðingar hans hafa á börn. En líka hafa skýra sýn á hvernig við endurbyggjum betri heim fyrir þau þegar þessi krísa er yfirstaðin. Við þurfum hugmyndir, úrræði, sköpunargleði og ástríðu til þess. Það er okkar sameiginlega skylda í dag að endurhugsa hvernig heimurinn mun líta út á morgun,“ segir Henrietta Fore að lokum.

Greinina í Lancet Global Health journal má lesa í heild sinni hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn