Í tilefni af alþjóðadegi barna, sem er á morgun, fór Ævar Þór Benediktsson með fulltrúum frá UNICEF á Íslandi í stjórnarráðið með mikilvæg skilaboð í höndunum. Börn í Flataskóla skrifuðu skilaboð til stjórnvalda á fallega skreytta loftbelgi sem Ævar afhenti Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra. Börnin vonast til að ríkisstjórnin muni hjálpa loftbelgjunum að berast til leiðtoga heimsins. Þau skilaboð eru meðal annars að: öll börn eiga að fá vernd gegn ofbeldi, öll börn eiga að ganga í skóla, öll börn eiga að fá hreint vatn og heimili, eiga vini og fjölskyldu og að stelpur og strákar eiga jafn mikinn rétt til að tjá sig.
Katrín tók vel í skilaboðin og sagði það vera mikinn heiður að fá þau afhent. „Þetta skiptir mjög miklu máli að fá að heyra hvað börnin hafa að segja,“ sagði Katrín. Hún sagði að á næsta ári væri ætlunin að halda sérstakt barnaþing, í fyrsta skiptið á Íslandi, þar sem börn hvaðanæva af landinu geta sett málefni á dagskrá. Hún sagði einnig að málefni barna væru eitt af forgangsmálum Íslands í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. „Það skiptir máli að passa uppá öll börn í heiminum,“ sagði Katrín.
Á alþjóðadegi barna minnum við á að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna veitir öllum börnum um allan heim mikilvæg réttindi. Yfirskrift átaks UNICEF á Íslandi á alþjóðadegi degi barna er #börnfáorðið. Markmið dagsins er að gefa börnum og ungmennum orðið, og skapa vettvang fyrir þau til að tjá skoðanir sínar opinberlega og í sínu nærumhverfi. UNICEF á Íslandi hvetur því fjölmiðla, skóla, foreldra og ráðamenn til að gefa börnum orðið þennan dag, og alla aðra daga, þannig að börn fái tækifæri til að tjá skoðanir sínar og tala fyrir réttindum sínum og annarra barna heima hjá sér, í skólanum og úti í samfélaginu.
Hægt er að fylgjast með viðburðum og uppákomum hér á landi og um allan heim undir myllumerkjunum #börnfáorðið og #WorldChildrensDay.

