07. mars 2016

Ævar vísindamaður er talsmaður UNICEF-hreyfingarinnar í ár

Ævar vísindamaður mun aðstoða UNICEF á Íslandi við að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og auka skilning á því hvernig réttindi barna hafa tengingu við daglegt líf þeirra.

Talsmaður UNICEF-hreyfingarinnar í ár verður Ævar vísindamaður. Hann mun aðstoða UNICEF á Íslandi við að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og auka skilning á því hvernig réttindi barna hafa tengingu við daglegt líf þeirra. Í ár verður sérstök áhersla lögð á Sýrland og Ævar mun miðla til barnanna ýmsum staðreyndum um Sýrland, stríðið og áhrif þess á börn.

„Það er okkur mikill heiður að fá Ævar vísindamann, Ævar Þór Benediktsson, til liðs við okkur. Hann er góð fyrirmynd og hefur einstakt lag á að miðla flóknum viðfangsefnum til barna á einlægan og upplýsandi hátt,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Markmið UNICEF-hreyfingarinnar er að auka vitund barna og ungmenna um þróunarmál, réttindi barna og lífsskilyrði þeirra víðs vegar um heiminn.


Eftir fræðsluna fá börnin tækifæri til að sýna hug sinn í verki með virku framlagi til mannúðarmála. Þannig er markmiðið að þroska með þeim þá tilfinningu að allir geti lagt sitt af mörkum, hver með sínum hætti. Börnunum er gert kleift að safna hóflegum áheitum frá sínum nánustu með hollri hreyfingu, útivist eða annars konar þátttöku.

Þeir skólar sem taka þátt í verkefninu fá það sem til þarf frá UNICEF á Íslandi sem auðveldar þeim að skipuleggja skemmtilegan, fræðslutengdan viðburð og nota þannig krafta sína í þágu verðugs málstaðar.

Nú í mars eru fimm ár frá því að stríðið hófst í Sýrlandi. „Hörmungar stríðsins og áhrif þess á börn hafa ekki farið framhjá neinum. Í ár ákváðum við því að fræðsluefni hreyfingarinnar myndi fjalla sérstaklega um Sýrlandsstríðið og afleiðingar þess á börn. Söfnunarféð mun síðan nýtast í að hlúa að börnum á flótta ásamt því að fræða börn á Íslandi um réttindi sín,“ segir Bergsteinn Jónsson hjá UNICEF á Íslandi.

„Umfjöllun um stríðið í Sýrlandi hefur aldrei verið meiri og við vildum einfaldlega styðja við kennara og foreldra í þeirri umræðu sem skapast hefur. Þannig vildum við gefa börnum, foreldrum og kennurum tækin og tólin til að ræða um stríð, flótta og áhrif þessa á börn,“ segir hann.

Sífellt fleiri skólar taka þátt í UNICEF-hreyfingunni, en alls hafa 60 skólar og frístundaheimili tekið þátt frá upphafi. Nemendur sem tekið hafa þátt skipta orðið tugþúsundum hér á landi.

Skráning er nú hafin fyrir þátttöku árið 2016. ​

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn