21. maí 2004

Afrískt tónlistarfólk semur lag í von um að geta heft útbreiðslu alnæmis

Þekktir afrískir tónlistarmenn komu saman dagana 16.-20. maí í Senegal til að taka upp lag í von um að geta vakið fólk til umhugsunar um HIV/alnæmi og heft útbreiðslu sjúkdómsins í álfunni. Þá er markmiðið einnig að geta dregið úr fátækt um helming fyrir árið 2015, en það er ártal sem miðað er við í Þróunarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Tónlistarmennirnir heita Salif Keita frá Mali, Youssou N’Dour sem er velgjörðarsendiherra UNICEF, og Baaba Maal, báðir frá Senegal, Malouma Mint Meidah frá Máritíu, og Cheb Mami frá Algeríu. Að nota tónlist til að vekja almenning í Afríku til umhugsunar um HIV/alnæmi hefur reynst árangursrík leið í baráttunni gegn sjúkdómnum. Áætlað er að lagið verði endanlega tilbúið í október á þessu ári.

Fulltrúi UNDP, Mark Malloch Brown, sagði að aðeins með vitunarvakningu almennings væri hægt að yfirstíga þau vandamál sem að álfunni steðji.

Yfirmaður kynningardeildar UNDP, Djibril Diallo, lagði áherslu á að Afríka hefði að geyma mikinn mannauð. ,,Í Afríku er ekki bara að finna listræna hæfileika, heldur einnig mikla þekkingu og tæknilega kunnáttu, auk allra náttúruauðævanna. Það er því mögulegt að nálgast það markmið að heil kynslóð alist upp án HIV/alnæmis árið 2015,” sagði Diallo.

Þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna voru samþykkt á fundi Sameinuðu þjóðanna árið 2000. En markmiðið með þeim er að draga úr mikilli fátækt um helming, veita öllum börnum grunnmenntun, hefta útbreiðslu HIV/alnæmis og annarra sjúkdóma og draga úr barnadauða og dauðsföllum við fæðingu, allt fyrir árið 2015.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn