07. ágúst 2018

Áhrifavaldar hlaupa fyrir UNICEF

Í Jemen ríkir gífurleg neyð en næstum hvert einasta barn í landinu þarf á lífsnauðsynlegri hjálp að halda. Margra ára átök hafa lagt landið og innviði þess í rúst. Nærri tvær milljónir barna þjást vegna vannæringar, milljónir barna eru utan skóla og mikill skortur er á hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu.

7. ágúst 2018.

Nú styttist í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 18. ágúst næstkomandi.

Í ár renna þau áheit sem safnast fyrir UNICEF á Íslandi í Reykjavíkurmaraþoninu til verkefna UNICEF í Jemen. Flottur hópur hlaupara safnar áheitum fyrir UNICEF í ár, en þar má meðal annars nefna leikkonuna Maríu Thelmu Smáradóttur og samfélagsmiðlastjörnuna Ernu Kristínu Stefánsdóttur (@ernuland).

Við hjá UNICEF á Íslandi mætum ár hvert og hvetjum áfram þá frábæru hlaupara sem þar taka þátt, ekki síst þau sem safna áheitum fyrir starf UNICEF. Við erum ávallt hjá JL húsinu og þangað eru allir velkomnir að hvetja með okkur!

Hægt er að skrá sig til að hlaupa fyrir UNICEF hér en einnig er hægt að heita á hlaupara sem hlaupa til styrktar UNICEF hér.

1000 krónur samsvara rúmlega viku meðferð gegn vannæringu fyrir eitt barn.

2000 krónur samsvara rúmlega tveggja vikna meðferð gegn vannæringu fyrir eitt barn.

5000 krónur geta útvegað 50.000 lítra af drykkjarhæfu vatni.

10.000 krónur útvega námsgögn fyrir 14 börn.

Í Jemen ríkir gífurleg neyð en næstum hvert einasta barn í landinu þarf á lífsnauðsynlegri hjálp að halda. Margra ára átök hafa lagt landið og innviði þess í rúst. Nærri tvær milljónir barna þjást vegna vannæringar, milljónir barna eru utan skóla og mikill skortur er á hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu.

Áheitin frá Reykjavíkurmaraþoninu munu nýtast til að veita lífsnauðsynlega neyðaraðstoð í Jemen, meðal annars að meðhöndla börn gegn vannæringu, tryggja vatns- og hreinlætisaðstöðu til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdóma, bólusetja börn gegn mænusótt, dreifa skólagögnum og setja upp barnvæn svæði þar sem kennsla getur farið fram og hægt er að veita börnum sálræna aðstoð til að vinna úr áföllum sínum.

Með hjálp heimsforeldra og þeirra sem hafa stutt neyðaraðgerðir UNICEF í Jemen hefur á þessu ári meðal annars tekist að tryggja 4,6 milljónum aðgengi að hreinu vatni með því að laga skemmd vatnskerfi, meðhöndla 80.000 börn við alvarlegri vannæringu og tryggja hálfri milljón barna heilbrigðisþjónustu. Nú í vikunni hóf UNICEF einnig bólusetnignarátak gegn kóleru í Jemen.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn