24. júlí 2009

Allir styrktarsamningar við UNICEF á Íslandi heiðraðir

Vegna efnahagsþrenginganna á Íslandi og tengdrar umræðu vill UNICEF á Íslandi m.a. koma á framfæri að allir styrktarsamningar sem fyrirtæki, sjóðir og einstaklingar hafa gert við UNICEF hafa verið heiðraðir og að engir fjármunir UNICEF á Íslandi töpuðust við fall bankanna á haustdögum 2008.

Vegna efnahagsþrenginga og tengdrar umræðu vill UNICEF á Íslandi koma á framfæri að allir styrktarsamningar sem fyrirtæki, sjóðir og einstaklingar hafa gert við UNICEF, allt frá stofnun samtakanna hérlendis, hafa verið heiðraðir. UNICEF á enga óuppgerða kröfu í þrotabú íslenskra fyrirtækja eða einstaklinga. Jafnframt hefur verið staðið við allar skuldbindingar gagnvart þróunarverkefnum í þágu barna þrátt fyrir gengislækkun íslensku krónunnar og erfiðar ytri aðstæður. Einnig má taka fram að engir fjármunir UNICEF á Íslandi töpuðust við fall bankanna á haustdögum 2008.

Starf UNICEF á Íslandi stendur vel og viljum við koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu aðila sem styrkja starfið.  Íslenskir heimsforeldrar UNICEF hafa aldrei verið fleiri en í júlímánuði 2009 en heimsforeldrar styðja UNICEF með mánaðarlegum framlögum og eru öflugasta stuðningsnet samtakanna. Þá hefur UNICEF átt í ánægjulegu samstarfi við ýmis fyrirtæki þrátt fyrir dökkar horfur í efnahagsmálum. Þessi viðbrögð gefa okkur góð fyrirheit um að Íslendingar muni ótrauðir styðja áfram við börn sem búa við sára neyð víða í heiminum.

Börn bera enga ábyrgðBörn þessa heims bera ekki ábyrgð á hinni alþjóðlegu fjármálakreppu. Þau eru einungis fórnarlömb hennar. Viðbúið er að framlög til þróunarsamvinnu dragist saman á alþjóðlegum grundvelli á komandi misserum. Í því ljósi er enn mikilvægara en áður að standa vörð um réttindi og hagsmuni barna. Með liðsstyrk stuðningsaðila okkar mun mun UNICEF vera þar í fararbroddi sem fyrr.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn