13. janúar 2015

Allt að 2.000 látnir í Nígeríu undanfarna daga

Vígamenn nígerísku samtakanna Boko Haram hafa undanfarin misseri herjað á bæi í norðausturhluta Nígeríu. Bærinn Baga hefur orðið afar illa úti í árásunum sem náðu hámarki í síðustu viku.

Líklega er um að ræða verstu fjöldamorð sem framin hafa verið af Boko Haram, en talið er að allt að 2.000 manns  hafi fallið í ítrekuðum árásum vígamanna undanfarna daga. Meirihluti þeirra sem hafa fallið eru börn, konur og aldraðir íbúar sem ekki náðu að flýja í tæka tíð.
Þá voru tvær  stúlkur sem taldar eru vera um 10 ára gamlar stúlkur (hve margar?) sendar í sjálfsmorðsárás á götumarkað í Maiduguri.

Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF fordæmir síaukið ofbeldi gegn börnum í Nígeríu. „Allt að 2.000 saklaus börn, konur og eldri borgarar hafa verið myrt í Baga. Í Maiduguri voru ungar stúlkur sendar út í opinn dauðann með sprengjur límdar utan við sig. Og ekki má gleyma þeim 200 stúlkum sem var rænt frá fjölskyldum sínum og enn eru týndar. Þessar fregnir frá Nígeríu ættu að vera í brennidepli.“

„Orðin ein geta ekki tjáð reiði okkar og hneykslan, né linað þjáningar þeirra sem búa við stöðugan ótta við ofbeldi í norðurhluta Nígeríu,“ bætir Lake við.

Nígerískar stúlkur sem Boko Haramhafa rænt hundruðum saman eru neyddar í kynlífsánauð, vinnuþrælkun og nauðungarhjónabönd. Vitnisburður stúlkna sem sloppið hafa frá samtökunum lýsir skelfilegu andlegu og líkamlegu ofbeldi sem þær eru beittar í haldi.

Árásirnar varpa ljósi á ofbeldi sem börn verða fyrir í auknum mæli  í heiminum í dag. Börn eru skotmark ofbeldis, þau eru drepin í skólastofum og á heimilum sínum. Þau hafa verð gerð munaðarlaus, verið pyntuð, dregin inn í hernaðarleg átök, nauðgað og verið seld í þrældóm.

„Þær fréttir sem okkur hafa borist undanfarna daga gefa skýrt til kynna við hverju má búast í framtíðinni í Nígeríu og við eigum ekki að láta þetta viðgangast,“ segir Lake.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn