22. nóvember 2016

Allt gert til að koma í veg fyrir mænusóttarfaraldur í Nígeríu

■ UNICEF og samstarfsaðilar ráðast í víðtæka bólusetningarherferð: 41 milljón barna bólusett ■ Yfir 12 milljónir hafa safnast í neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi ■ Fleiri en 131.000 börn meðhöndluð gegn vannæringu

Umfangsmikið bólusetningarátak gegn mænusótt stendur nú yfir í Nígeríu eftir að þrjú tilvik af veikinni greindust í norðausturhluta landsins þar sem mörg hundruð þúsund börn eru í lífshættu vegna vannæringar. Yfir 40 milljón börn verða bólusett til að hindra að mænusóttarfaraldur brjótist út, enda hafði ekkert tilfelli komið upp í Afríku í tvö ár og í sjónmáli er að útrýma þessum skæða sjúkdómi á heimsvísu.

Um leið og börnin í Borno-héraði í Nígeríu eru bólusett eru þau skimuð fyrir vannæringu og vísað í meðferð við henni ef þörf krefur. Í gegnum bólusetningarátakið er þannig hægt að ná til barna sem eru vannærð og veita þeim hjálp.

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi vegna vannærðra barna í Nígeríu og nágrannaríkjunum er enn í fullum gangi og hægt er að styrkja hana með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.000 kr).

Yfir 12 milljónir króna hafa safnast í neyðarsöfnuninni hér á landi.

„Mörg þúsund manns hafa stutt söfnunina og það er okkur mjög mikilvægt að finna þennan mikla stuðning. Þetta er ómetanlegt, enda er neyðin á svæðinu gríðarleg og þörf á að stórauka aðgerðir UNICEF. Í húfi eru raunveruleg líf, raunveruleg börn og raunverulegur möguleiki á að koma í veg fyrir að þau láti lífið,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Síðastliðna mánuði hafa 131.349 börn fengið meðferð gegn vannæringu í norðausturhluta Nígeríu, þar sem ástandið er verst. Auk þess hafa börn annars staðar í landinu fengið hjálp, sem og í nágrannaríkjunum.

Mænusóttartilfellin sem upp komu nýverið bætast ofan á einstaklega erfiða stöðu á svæðinu. Sums staðar í Borno-héraði í Nígeríu eru allt að 15% barna alvarlega bráðavannærð.

Þar sem margir flóttamenn eru á ferð yfir landamærin er hætta á að mænusótt breiðist út til nágrannaríkjanna og því mikilvægt að hafa hraðar hendur á til að hemja útbreiðslu veikinnar. Bólusetningarnar fara af þessum sökum einnig fram í Níger, Tsjad, Kamerún og Mið-Afríkulýðveldinu.

„Við gerum allt sem við getum ásamt samstarfsaðilum okkar til að koma í veg fyrir að veikin breiðist út. Umfang viðbragðanna sýnir alvarleika aðstæðnanna,“ segir Bergsteinn Jónsson.

Gríðarlegur árangur hefur náðst í baráttunni gegn mænusótt á heimsvísu og Nígería er eina landið í Afríku þar sem ekki hefur tekist að útrýma sjúkdómnum. Ríki er talið laust við hann þegar engin tilfelli hafa greinst þar í þrjú ár. Í Nígeríu hafði náðst tímamótaárangur og ekki orðið vart við mænusótt í tvö ár þegar tilfellin þrjú komu upp í norðausturhluta landsins. Mikið kappsmál er því að hindra frekari útbreiðslu sjúkdómsins, samhliða því að meðhöndla börn gegn vannæringu.

Hægt er að styrkja neyðarhjálp UNICEF með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.000 kr).

Einnig er hægt að styrkja neyðarsöfnunina hér eða með því að leggja inn á neyðarreikninginn: 701-26-102050 (kt. 481203-2950).

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn