14. júní 2017

Almenn viðmið um opinbera umfjöllun um börn

Hvað ber að hafa í huga og hvað ber að varast þegar fjallað er um börn og málefni barna í fjölmiðlum? Hvernig má tryggja að gætt sé að öryggi barna og velferð þegar um þau er fjallað eða þegar börn taka sjálf þátt í almennri umfjöllun?

14. júní 2017

Barnaheill - Save the Children á Íslandi, Fjölmiðlanefnd, Heimili og skóli, SAFT, Umboðsmaður barna og UNICEF hafa tekið höndum saman um gerð almennra viðmiða vegna opinberrar umfjöllunar um börn. Viðmiðunum er ætlað að styrkja fjölmiðla í að þjóna almannahlutverki sínu með réttindi barna að leiðarljósi, tryggja vandaða og uppbyggilega umfjöllun um málefni barna í fjölmiðlum, ásamt því að stuðla að þátttöku barna í samfélagsumræðu.

Viðmiðin má sjá með því að ýta hér.

Frekari upplýsingar veita Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur hjá Umboðsmanni barna, í síma 552 8999, og Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, lögfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd, í síma 415 0415.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn