20. nóvember 2017

Alþjóðlegur dagur barna er í dag!

Í dag, 20. nóvember, er alþjóðlegur dagur barna haldinn hátíðlegur um allan heim. Dagurinn er einnig afmælisdagur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, gleðst yfir þeim mikla árangri sem náðst hefur við að bæta stöðu barna um allan heim en minnir um leið á að þrátt fyrir miklar framfarir þá eru réttindi barna víða brotin. Í dag búa til að mynda eitt af hverjum 12 börnum í löndum þar sem meiri óvissa ríkir um framtíð þeirra heldur en ríkti um framtíð foreldra þeirra þegar þau voru börn.

Í dag, 20. nóvember, er alþjóðlegur dagur barna haldinn hátíðlegur um allan heim. Dagurinn er einnig afmælisdagur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, gleðst yfir þeim mikla árangri sem náðst hefur við að bæta stöðu barna um allan heim en minnir um leið á að þrátt fyrir miklar framfarir þá eru réttindi barna víða brotin. Í dag búa til að mynda eitt af hverjum 12 börnum í löndum þar sem meiri óvissa ríkir um framtíð þeirra heldur en ríkti um framtíð foreldra þeirra þegar þau voru börn.

Yfirskrift alþjóðlegs átaks UNICEF á alþjóðlegum degi barna er #KidsTakeOver eða #börnfáorðið og eru ýmsar uppákomur skipulagðar um allan heim. Yfir 130 lönd taka þátt á átakinu þar sem börnum er gefinn vettvangur til að tjá sig um þau mál sem brenna á þeim. Tilgangurinn er að minna á að börn eiga mikilvæga rödd og að þau skulu vera þátttakendur í ákvörðunum sem munu móta framtíð þeirra.

Í tilefni dagsins fá fyrstu Réttindaskólar UNICEF á Íslandi viðurkenningu, en það eru Flataskóli í Garðabæ og Laugarnesskóli í Reykjavík ásamt frístundaheimilunum Laugaseli og Krakkakoti. Í samstarfi við UNICEF leggja þessir skólar og frístundaheimili Barnasáttmálann til grundvallar í öllu sínu í starfi.

Ungmennaráð UNICEF á Íslandi framleiddi myndbönd í tilefni dagsins þar sem nokkur börn tjá sig um það sem skiptir þau máli, svo sem hverju þau myndu breyta í heiminum ef þau fengju að ráða og hvað þau myndu gera sem forseti Íslands í einn dag.

„Börn vita best hvernig er að vera börn og því finnst okkur mikilvægt að fullorðnir hlusti meira á þeirra skoðanir og leyfi þeim að tjá sig. Enda eru það mikilvæg réttindi barna. Þess vegna ákváðum við að búa til þessi myndbönd, til að leyfa börnum að segja sínar skoðanir,” segir Anna Arnarsdóttir, starfandi formaður Ungmennaráðs UNICEF á Íslandi.

Alþjóðlega munu þekktir leikarar, þjóðarleiðtogar og Velgjörðasendiherrar UNICEF um allan heim taka þátt í deginum. Í stuttmynd sem unnin var af UNICEF í samstarfi við David Beckham ræða börn stöðu heimsmála, á Spáni munu börn taka yfir fótboltaleikvang FC Barcelona með Messi og félögum og nýtt tónlistarmyndband við lag söngkonunnar P!nk var frumsýnt svo nokkuð sé nefnt. Auk þess munu leikkonurnar Dafne Keen (Logan) og Isabela Moner (Transformers: the Last Knight), ásamt Nickelodeon stýra samkomu 150 barna í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.

„Markmið #börnfáorðið átaks UNICEF á Íslandi er að minna á það að börn eru mikilvægur hluti af okkar samfélagi og að hlusta eigi á þau, í dag og alla aðra daga. Markmiðið er einnig að vekja athygli á réttindum barna um allan heim og gefa börnum tækifæri til að tjá sig um þau mál sem hafa áhrif á þau og berjast fyrir réttindum sínum og annarra barna,” segir Steinunn Jakobsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi.

„Börn eru ekki með kosningarétt, en eru hins vegar sá þjóðfélagshópur sem treystir hvað mest á vilja stjórnvalda til að tryggja menntun þeirra og öryggi,“ segir Steinunn og nefnir að börn í Flataskóla hafi skrifað skilaboð til stjórnvalda sem verða afhend í dag. Þau skilaboð eru meðal annars að: öll börn eiga að fá vernd gegn ofbeldi, öll börn eiga að ganga í skóla og eiga vini og fjölskyldu og að stelpur og strákar eiga jafn mikinn rétt til að tjá sig. Skilaboðunum verður komið til nýrrar ríkisstjórnar þegar hún hefur verið mynduð og vonast börnin til að skilaboðin munu berast til leiðtoga heimsins.

UNICEF á Íslandi hvetur fjölmiðla, skóla, foreldra og ráðamenn til að gefa börnum orðið á alþjóðlegum degi barna þannig að börn fái tækifæri til að tjá skoðanir sínar og tala fyrir réttindum sínum og annarra barna heima hjá sér, í skólanum og úti í samfélaginu.

Hægt er að fylgjast með viðburðum og uppákomum hér á landi og um allan heim undir myllumerkjunum #börnfáorðið og #WorldChildrensDay.

Fleiri
fréttir

17. apríl 2024

Börn í Réttindaskólum sýna betri skilning á réttindum sínum og Barnasáttmálanum
Lesa meira

15. apríl 2024

Ár af stríði í Súdan: Hvergi fleiri börn á flótta í heiminum
Lesa meira

11. apríl 2024

Þrjár ungar stúlkur létu lífið undan ströndum Grikklands
Lesa meira
Fara í fréttasafn