Alls safnaðist sem nemur 56.200 bólusetningum gegn mænusótt í átaksverkefni UNICEF á Íslandi og Te & Kaffi sem bar heitið Klárum málið og fór fram í september. Te & Kaffi gaf andvirði einnar bólusetningar gegn mænusótt af hverjum seldum drykk, auk þess sem viðskiptavinum var boðið að bæta við andvirði bólusetningar er þeir greiddu fyrir drykkinn.
Mænusóttarveiran er mjög smitandi og getur valdið bæði lömun og dauða. Engin lyf eru til sem lækna mænusótt. Einungis er hægt að koma í veg fyrir að fólki fái veikina og það er gert með bólusetningu.
Þetta var í fjórða sinn sem UNICEF á Íslandi og Te & Kaffi tóku höndum saman í kaffihúsaátaki og í þriðja sinn sem safnað var fyrir mænusótt. Alls hafa nú safnast andvirði 250.549 bólusetninga hér á landi. Miðað við að hvert barn þurfi að fá þrjár bólusetningar dugar þessi fjöldi bólusetninga fyrir fleiri en 85.000 börn.
Átaksverkefninu nú í ár var sem fyrr mjög vel tekið. Te & Kaffi hefur verið ómetanlegur stuðningsaðili UNICEF á Íslandi frá árinu 2008 og safnað yfir 30 milljónum króna fyrir samtökin.
Klárum málið!
Mikill árangur hefur náðst í baráttunni gegn mænusótt síðustu áratugi. Tekist hefur að fækka tilfellum um 99,99% frá árinu 1988, en þá var veikin landlæg í 125 löndum. Í dag er mænusótt einungis landlæg í Afganistan og Pakistan.
Þessum frábæra árangri hefur fyrst og fremst verið náð með afar víðtækum bólusetningum. UNICEF, Rótarý-hreyfingin, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og fleiri hafa verið þar í fararbroddi, ásamt milljónum sjálfboðaliða.
Mænusóttarveiran er afar smitandi og talið er að ef sjúkdómurinn færi aftur á flug í heiminum gæti staðan eftir tíu ár verið orðin sú að 200.000 börn myndu smitast árlega af veikinni á heimsvísu. Til samanburðar hafa einungis komið upp 27 tilfelli á þessu ári. Sérstök hætta er á að sjúkdómurinn breiðist út þar sem innviðir hafa brostið, svo sem á átakasvæðum.
Afar mikilvægt er því að klára málið og útrýma sjúkdómnum endanlega úr heiminum.

