03. maí 2005

Ann M. Veneman tekur við sem framkvæmdastjóri UNICEF

Ann M. Veneman er nýr framkvæmdastjóri UNICEF og tók hún við nú um síðustu mánaðarmót og varð þar með fimmti framkvæmdastjóri UNICEF í 60 ára sögu samtakanna. „Það er mikill heiður fyrir mig að fá tækifæri til að leiða UNICEF, sem eru ein merkustu hjálparsamtök í heimi,“ sagði Veneman á sínum fyrsta starfsdegi í höfuðstöðvunum í New York.

Ann M. Veneman er nýr framkvæmdastjóri UNICEF og tók hún við nú um síðustu mánaðarmót og varð þar með fimmti framkvæmdastjóri UNICEF í 60 ára sögu samtakanna.

„Það er mikill heiður fyrir mig að fá tækifæri til að leiða UNICEF, sem eru ein merkustu hjálparsamtök í heimi,“ sagði Veneman á sínum fyrsta starfsdegi í höfuðstöðvunum í New York í gær. „Allt of mörg börn í heiminum þurfa að þola erfiðleika og hindranir sem ættu ekki að vera hluti af barnæskunni. Ég hlakka til við að halda uppi markmiðum UNICEF um að þjóna öllum börnum heims.“

Veneman, sem var skipuð af framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Kofi Annan, starfaði áður sem landbúnaðarráðherra bandarísku ríkisstjórnarinnar. Þar stjórnaði hún 111 þúsund starfsmönnum og bar ábyrgð á fjárhag upp á 113 milljarða króna, sem myndi teljast sá sjötti stærsti ef um væri að ræða bandarískt fyrirtæki.

Landbúnaðarráðuneyti Bandaríkjanna er eitt af stærri ráðuneytunum og hefur margvísleg verkefni á sinni könnu og hefur hún starfað þar í um 20 ár. Veneman kemur því til UNICEF með mikla reynslu sem mun eflaust nýtast samtökunum vel.

Ann Veneman er með B.A. gráðu í stjórnmálafræði og mastersgráðu í opinberri stefnumótun frá Berkeley, ásamt því að vera með doktorsgráðu í lögfræði frá Kaliforníuháskóla.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn