28. desember 2005

Ár liðið frá hamförunum við Indlandshaf

Annan í jólum var eitt ár liðið frá flóðbylgjunni við Indlandshaf. Hamfarirnar sem fylgdu voru geigvænlegar og kölluðu á neyðaraðstoð af þeirri stærðargráðu sem engin dæmi voru fyrir. Ríkisstjórnir og einstaklingar um allan heim sýndu mikið örlæti og hjálparstofnanir eins og UNICEF fengu liðstyrk hvaðan æva að úr heiminum.

Annan í jólum var eitt ár liðið frá flóðbylgjunni við Indlandshaf. Hamfarirnar sem fylgdu voru geigvænlegar og kölluðu á neyðaraðstoð af þeirri stærðargráðu sem engin dæmi voru fyrir. Ríkisstjórnir og einstaklingar um allan heim sýndu mikið örlæti og hjálparstofnanir eins og UNICEF fengu liðstyrk hvaðan æva að úr heiminum. Enda tókst að koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra, meira en 90 prósent barna voru komin aftur í skólann innan þriggja mánaða, hundruð þúsundir barna hafa fengið sálrænan stuðning og fjölskyldur hafa verið sameinaðar.

Áætlað er að 3,5 milljónir manna hafi notið góðs af störfum UNICEF á svæðinu. Samt sem áður er hjálparstarfinu hvergi lokið. Tugir þúsunda fjölskyldna búa enn við mjög erfiðar aðstæður og hjálparsamtök gera áætlanir um uppbyggingu til næstu ára.

UNICEF var eitt af þeim hjálparsamtökum sem gátu brugðist skjótt við vegna þess að þau voru þegar á svæðinu. UNICEF hefur meðal annars:

- veitt 1,4 milljónum barna skólagögn,
- komið fyrir 114 vatnskerfum sem mun gagnast hálfri milljón manna,
- bólusett 1,220,099 börn gegn mislingum, 
- dreift 557,948 malaríunetum til kvenna og barna,
- veitt 358,437 börnum sálrænan stuðning og umönnun.

Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu UNICEF.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn