30. desember 2019

Áramótabomban sem bjargar lífum

Þessi bomba er ekki að fara að hræða nein dýr né vekja sofandi börn í kringum áramótin. Þessi bomba bjargar börnum og mengar þar að auki ekki andrúmsloftið fyrir öðrum.

30. desember 2019 Þessi bomba er ekki að fara að hræða nein dýr né vekja sofandi börn í kringum áramótin. Þessi bomba bjargar börnum og mengar þar að auki ekki andrúmsloftið fyrir öðrum.

UNICEF kynnir til leiks Áramótabombuna á Sönnum gjöfum sem inniheldur 15 lítra af næringarmjólk og 10 skammta af vítamínbættu jarðhnetumauki en hvor tveggja gerir kraftaverk fyrir alvarlega vannærð börn. Við heyrum að margir eru að leita nýrra leiða til að kveðja gamla árið og það verður enginn svikinn af töfrum Sannra gjafa sem slógu í gegn fyrir jólin. En það eru til Sannar gjafir fyrir flest tilefni, líka áramót. Ekki láta fjármuni þína fuðra upp í mengunarskýi á miðnætti. Strengdu þess heldur áramótaheit að bjarga börnum í neyð á nýju ári.

Þetta er hinn eini sanni fjölskyldupakki sem þú verður að prófa!

Nánari upplýsingar um Áramótabombuna má finna á Sannargjafir.is.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn