03. júní 2020

Ársfundur UNICEF á Íslandi

Ársfundur UNICEF á Íslandi verður haldinn miðvikudaginn 10. júní 2020 kl 10-11 í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu 41, Reykjavík.

Bleiku náttfötin sem hún er í voru það síðasta sem pabbi hennar gaf henni og neitar hún að fara úr þeim.

3. júní 2020 Ársfundur UNICEF á Íslandi verður haldinn miðvikudaginn 10. júní 2020 kl 10-11 í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu 41, Reykjavík.

Kjartan Örn Ólafsson, formaður stjórnar UNICEF á Íslandi, mun stýra fundinum sem verður opinn almenningi og fjölmiðlum. Á fundinum mun framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Birna Þórarinsdóttir, kynna helstu niðurstöður í starfi landsnefndarinnar árið 2019 og Hjördís Eva Þórðardóttir segja frá öflugu innanlandsstarfi í þágu barna á Íslandi.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

10:00-10:10: Ávarp formanns stjórnar UNICEF á Íslandi, Kjartan Örn Ólafsson.
10:10-10:25 Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, kynnir niðurstöður 2019.
10:25-10:40 Hjördís Eva Þórðardóttir, teymisstjóri innanlandsdeildar UNICEF á Íslandi.
10:40-11:00 Almennar umræður, kaffi og kleinur

Hlökkum til að sjá þig!

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn