Erna Blöndal, formaður stjórnar UNICEF á Íslandi, stýrir fundinum sem er opinn almenningi og fjölmiðlum. Á fundinum mun framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Bergsteinn Jónsson, kynna niðurstöður í starfi landsnefndarinnar árið 2018.
Safnahúsið (áður Þjóðmenningarhúsið) er á Hverfisgötu 15. Gert er ráð fyrir að fundi ljúki klukkan 11.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
10:00-10:10: Ávarp formanns stjórnar UNICEF á Íslandi, Ernu Blöndal
10:10-10:25 Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, kynnir niðurstöður 2018
10:25-10:45 Bergsteinn Jónsson fjallar um aukinn stuðning við innanlandsstarf landsnefndarinnar
10:45-11:00 Stuttar umræður, nýjir stjórnarmenn kynntir og fráfarandi stjórnarmenn kvaddir.
Hlökkum til að sjá þig!

