Ársfundur UNICEF á Íslandi fór fram í Þjóðminjasafni Íslands í gær. Þar kom fram að engin landsnefnd hjá UNICEF safnar hlutfallslega hærri framlögum en sú íslenska. Alls safnaði UNICEF á Íslandi rúmum 600 milljónum króna árið 2015. Um er að ræða tæplega 15% vöxt á milli ára. Framlögin eru að langmestu leyti frá einstaklingum út um allt land og á öllum aldri: Heimsforeldrunum okkar.
Á fundinum fór Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, yfir árið 2015 og benti meðal annars á að framlög heimsforeldra á Íslandi hefðu samanlagt verið rúmar 500 milljónir króna í fyrra. Þetta er í fyrsta skipti sem framlög þeirra fara yfir 500 milljónir. Framlög heimsforeldra jukust hér á landi um 19% á milli ára. Bergsteinn kynnti jafnframt ársskýslu UNICEF á Íslandi fyrir árið 2015 en hana og fyrri ársskýrslur má nálgast hér.
Svanhildur Konráðsdóttir flutti á fundinum sitt seinasta ávarp sem stjórnarformaður UNICEF á Íslandi en hún hætti í gær eftir sex ára farsælt starf. Fimm nýir stjórnarmenn tóku sæti í stjórninni og fimm gengu úr stjórn, líkt og lesa má um hér.
„Gæfa okkar felst ekki síst í því að í hverjum mánuði sýnir stór hópur fólks á Íslandi mannúð sína í verki og styður af örlæti starf sem nýtist þeim börnum heimsins sem verst standa,“ sagði Svanhildur meðal annars á fundinum. „Þetta eru heimsforeldrarnir okkar – fólk á öllum aldri, úr öllum þjóðfélagsstéttum og alls staðar að af landinu; konur og karlar sem eiga það sameiginlegt að láta sig réttindi og velferð barna varða hvar í heimi sem þau eru stödd.“
Hjördís Eva Þórðardóttir, réttindafræðslufulltrúi hjá UNICEF á Íslandi, sagði á fundinum í gær frá spennandi tilraunaverkefni sem nefnist réttindaskólar en verkefnið hefur göngu sína í haust í samstarfi við þrjá skóla, frístundaheimili og félagsmiðstöð.
Sunna Ósk Logadóttir, fréttastjóri mbl.is, sagði síðan frá ferðum sínum til Líbanon og Úganda en í báðum ferðunum kynntist hún baráttu UNICEF á vettvangi. Fyrir greinarnar sínar um börn frá Sýrlandi á flótta í Líbanon hlaut Sunna blaðamannaverðlaun Íslands 2015.
„Þetta var einhvern veginn svona,“ sagði Sunna í erindi sínu. „Ótal margt að sjá. Þúsundir flóttamanna. Hundruð tjalda. Tugir manna að tala við. Forvitin augu barna á hinum frábæru barnvænu svæðum UNICEF. Og ég skrifaði allt hjá mér og tók myndir. Spurði spurninga. Vann vinnuna mína. Faðmaði viðmælendur mína nú oftar en ég geri venjulega.
Tók líklega fastar utan um þá. Horfði lengur í augun á þeim. Enda þessar aðstæður óvenjulegar. Tjöld í stað húsa, matur af skornum skammti. Dýpt í augum barnanna sem aðeins lífsreynt eldra fólk á að hafa.
Tilfinningarnar helltust svo yfir mig seinna. Fyrst sorgin. Svo reiðin. Hvers vegna er þetta svona? Hvers eiga þessi blessuðu börn að gjalda? Og hvernig get ég púslað saman greinum sem komast nálægt því að sýna hvernig ástandið raunverulega er?“



