Ársfundur UNICEF á Íslandi fer fram fimmtudaginn 9. júní 2015 kl 10:00-11:00 í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands. Almenningur, fjölmiðlar og allt áhugafólk er hjartanlega velkomið.
Á fundinum mun framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, Bergsteinn Jónsson, kynna niðurstöður ársins 2015 hjá landsnefndinni og Svanhildur Konráðsdóttir, stjórnarformaður, ávarpar fundinn. Svanhildur lætur nú af störfum sem stjórnarformaður eftir sex ára formennsku og níu ára stjórnarsetu.
Hjördís Eva Þórðardóttir, réttindafræðslufulltrúi hjá UNICEF á Íslandi, segir á fundinum frá spennandi tilraunaverkefni sem nefnist réttindaskólar. Loks mun Sunna Ósk Logadóttir, fréttastjóri mbl.is, segja frá ferðum sínum til Líbanon og Úganda en í báðum ferðunum kynntist hún baráttu UNICEF á vettvangi. Fyrir greinarnar sínar um börn frá Sýrlandi á flótta í Líbanon hlaut Sunna blaðamannaverðlaun Íslands 2015.
Þjóðminjasafnið er við Suðurgötu 41 og fundarsalurinn er á 1. hæð. Gert er ráð fyrir að fundi ljúki kl 11. Að honum loknum verður boðið upp á léttar kaffiveitingar.

