30. maí 2007

Átak gegn stífkrampa stendur yfir í Gíneu-Bissá

Átak gegn stífkrampa stendur nú yfir í fyrsta skipti í Gíneu-Bissá. Ætlunin er að útrýma stífkrampa í mæðrum og nýfæddum börnum. Forsætisráðherra landsins hrinti átakinu af stað um helgina. Um 330 þúsund stúlkur og konur frá 15 til 49 ára verða bólusettar þökk sé stuðningi frá UNICEF.

Átak gegn stífkrampa stendur nú yfir í fyrsta skipti í Gíneu-Bissá. Ætlunin er að útrýma stífkrampa í mæðrum og nýfæddum börnum. Forsætisráðherra landsins hrinti átakinu af stað um helgina. Um 330 þúsund stúlkur og konur frá 15 til 49 ára verða bólusettar þökk sé stuðningi frá UNICEF. Stífkrampi er sjúkdómur sem kemur frá bakteríum í umhverfinu sem fara inn í líkamann í gegnum opin sár. Talið er að sjúkdómurinn dragi 500 nýfædd börn til dauða á ári í Gíneu-Bissá.

Þetta átak er hluti af alheimsátaki gegn stífkrampa í mæðrum og hvítvoðungum. Vonast er til að það náist fyrir árið 2009. Heilbrigðisráðherra Gíneu-Bissá sagði að heilsugæsla fyrir mæður og börn væri forgangsverkefni í landinu öllu og kæmi það heim og saman við Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna númer 4 og 5 um að draga úr tíðni ungbarnadauða og mæðra.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn