13. ágúst 2007

Átak um brjóstagjöf í Írak

Sumarið í Írak er heitt, Celsíusgráðurnar nálgast 50 og það gæti þýtt að hættulegir sjúkdómar herji á yngstu börnin. UNICEF er í miðju átaki um að auka brjóstagjöf mæðra og bæta næringargjöf í landinu. Barnahjálpin varar við því að samblanda af miklum hita, skorti á drykkjarvatni og hreinlæti.

Sumarið í Írak er heitt, Celsíusgráðurnar nálgast 50 og það gæti þýtt að hættulegir sjúkdómar herji á yngstu börnin. UNICEF er í miðju átaki um að auka brjóstagjöf mæðra og bæta næringargjöf í landinu. Barnahjálpin varar við því að samblanda af miklum hita, skorti á drykkjarvatni og hreinlæti, sem er raunveruleikinn í mörgum íröskum borgum og flóttamannabúðum í augnablikinu, gæti valdið niðurgangsfaraldri, vannæringu, ofþornun og jafnvel dauða barna.

Roger Wright, yfirmaður UNICEF í Írak, sagði að yfir milljón barna hafi fæðst í Írak á síðastliðnum 12 mánuðum, a.m.k. 40 þúsund þeirra meðal flóttamanna sem búa í tímabundnum búðum. Brjóstagjöf er það besta fyrir börn fyrstu sex mánuðina og kostar fjölskyldurnar ekki neitt. Stefna stjórnvalda um að dreifa næringardufti fyrir ungabörn í matargjöfum til fjölskyldna gæti orðið stórslys í núverandi aðstæðum, sér í lagi þegar það yrði blandað við óhreint vatn.

,,Ofþornun sem orsakast af niðurgangi sem orsakast af óhreinu vatni og litlu hreinlæti er nú þegar stærsta dánarorsök yngstu barnanna í Írak," sagði Wright. ,,Hreinlæti er lítið fyrir en er nú verra í flóttamannavandanum og ofbeldinu, brjóstagjöf er besta vörnin sem hægt er að gefa íröskum börnum." Um þessar mundir er tíðni niðurgangs helmingi meiri en meðaltalið fyrir þennan tíma árs. Aðeins 25% barna undir 6 mánaða ára fá brjóstagjöf.

Fyrsta vikan í ágústmánuði 2007 var alheimsvika brjóstagjafa og því notar UNICEF tækifærið til að auka áhersluna á brjóstagjöf víða um heim.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn