Ljósmyndin af Aylan Kurdi sem grætti heimsbyggðina á haustmánuðum er flestum í fersku minni. Hann var þriggja ára gamall sýrlenskur drengur á flótta sem fannst látinn á baðströnd í Tyrklandi. Myndin fór víða og vakti sterk viðbrögð. Þetta varð að stöðva.
En hörmungarnar héldu áfram. Síðan í september hafa rúmlega fjögur hundruð börn fylgt Aylan litla Kurdi í vota gröf – að meðaltali tvö börn á dag.
Dagurinn í gær, 15. mars, markaði upphaf stríðsins í Sýrlandi fyrir fimm árum. Á þessum sorglegu tímamótum stóð UNICEF á Íslandi fyrir táknrænum viðburði meðfram Sæbrautinni í minningu þessara barna. Böngsum var raðað upp meðfram strandlengjunni frá Sólfarinu og í áttina að Hörpu: Einum bangsa fyrir hvert barn sem hefur drukknað frá því að Aylan Kurdi lést og Evrópa stóð á öndinni.
Þannig var þeirra sem látið hafa lífið minnst um leið og sett var fram sú skýlausa kröfa að réttindi barna á flótta væru virt.
Viðburðurinn var hluti af átakinu #segjumSTOPP sem við stöndum núna fyrir vegna þess að fimm ár eru liðin frá því að stríðið í Sýrlandi hófst. Nóg er komið af hörmungum. Krefja þarf valdhafa um markvissar aðgerðir til að stöðva stríðið, veita þarf börnum og fjölskyldum þeirra neyðarhjálp og tryggja þeim alþjóðlega vernd.
Hér má lesa ávarp sem flutt var á viðburðinum.
Öllum böngsunum var safnað saman strax eftir viðburðinn og skilið við strandlengjuna eins og komið var að henni. Bangsana fengum við ýmist lánaða eða gefna. Þeir verða núna gefnir áfram til Rauða krossins.





