20. nóvember 2019

Barnasáttmálinn 30 ára

Á þrjátíu ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í dag fögnum við þeim árangri sem náðst hefur í krafti hans um allan heim í þágu réttinda barna. Þessi útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims hefur breytt lífi ótal barna til hins betra þó enn sé brotið gegn réttindum allt of margra, rétti þeirra til heilbrigðisþjónustu, menntunar og verndar gegn ofbeldi, svo fátt eitt sé nefnt.

20. nóvember 2019 Á þrjátíu ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í dag fögnum við þeim árangri sem náðst hefur í krafti hans um allan heim í þágu réttinda barna. Þessi útbreiddasti mannréttindasáttmáli heims hefur breytt lífi ótal barna til hins betra þó enn sé brotið gegn réttindum allt of margra, rétti þeirra til heilbrigðisþjónustu, menntunar og verndar gegn ofbeldi, svo fátt eitt sé nefnt.

Í samfélagi þjóða stendur Ísland framarlega þegar kemur að réttindum og velferð barna, þó alltaf megi gera betur. Það voru stigin mikilvæg skref í að gera miklum mun betur í vikunni þegar undirritaður var samstarfssamningur UNICEF á Íslandi og félagsmálaráðuneytisins. Samningurinn getur sannarlega sett Ísland í fremstu röð ríkja sem uppfylla Barnasáttmálann. Undir formerkjunum Barnvænna sveitarfélaga er ætlunin að öll sveitarfélög á Íslandi hafi á næsta áratug hafið markvissa innleiðingu Barnasáttmálans og tileinkað sér barnaréttindanálgun í sínum verkefnum, stefnumótun og ákvörðunum. Þetta er einstakt skref og sannarlega tímamót í réttindamálum barna sem við erum viss um að muni efla samtal af gagnkvæmri virðingu milli kynslóða. Eins og með svo margt hefur Ísland alla burði til að vera í fararbroddi í þessum efnum og öðrum þjóðum fyrirmynd.

Í dag, á Alþjóðadegi barna, mun UNICEF á Íslandi veita fjórum grunnskólum í Vesturbæ Reykjavíkur, auk frístundaheimila og félagsmiðstöðvar, viðurkenningu sem réttindaskólum og réttinda­frístundum UNICEF. Grunnforsendur Barnasáttmálans eru því orðnar útgangspunktur allra ákvarðana í metnaðarfullu skóla- og frístundastarfi þar.

Á þessum afmælistímamótum Barnasáttmálans má glæst fortíð þó aldrei skyggja á möguleika framtíðarinnar. Það er í okkar höndum, og þeirra barna sem notið hafa góðs af, að tryggja skuldbindingu komandi kynslóða fyrir áframhaldandi baráttu fyrir þeim réttindum sem sáttmálinn tryggir. Börnin eru framtíðin en svo sannarlega líka nútíðin. Til hamingju með daginn, öllsömul!

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn