30.desember 2019 Árásir sem beint er gegn börnum hafa þrefaldast síðan árið 2010 og eru nú að meðaltali 45 brot gegn börnum á dag, segir UNICEF í áramótauppgjöri sínu. Þar segir að nú sé að ljúka blóðugum áratug fyrir börn þar sem staðfest hafi verið 170 þúsund alvarleg brot gegn börnum.
Og þrátt fyrir hugsanlega tilfinningu okkar um annað þá er fjarri lagi að við lifum einhverja sérstaka friðartíma. Raunar hafa lönd þar sem stríðsátök ríkja ekki verið fleiri síðan Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var samþykktur árið 1989. Og eins og alltaf kosta stríðsátökin í þessum tugum landa þann hóp mest sem á minnstan þátt í þeim. Börnin.
„Átök eru að verða langdregnari, blóðugri og eru að taka fleiri ung líf en áður,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF.
„Beinar árásir á börn halda áfram óáreittar og stríðandi fylkingar kasta fyrir róða frumreglu stríðs; að verja börnin. Og fyrir hvert einasta ofbeldisverk gegn barni sem kemst í fyrirsagnir fjölmiðla og vekja óhug, þá eru ótalmörg önnur óhæfuverk sem fá að liggja í skugganum í böndum þagnar.“
Á árinu 2018 staðfestu Sameinuðu þjóðirnar alls 24 þúsund alvarleg brot gegn börnum. Brotin sem um ræðir eru meðal annars morð á börnum, örkumlun, kynferðisbrot, rán á börnum, það að börnum sé neitað um mannúðaraðstoð og þeim gert að sinna hermennsku. Þá eru það brot gegn réttindum barna og árás á börn þegar gerðar eru árásir á skólabyggingar og sjúkrahús.
Vissulega hefur eftirlit og tilkynningarskylda verið aukin síðastliðinn áratug en tilkynningar um brot gegn börnum eru nú þrefalt fleiri en þær voru árið 2010. Rúmlega 12 þúsund börn voru drepin eða særð í árásum árið 2018. Þessu taka hefur síður en svo lækkað á árinu 2019.
Á fyrstu sex mánuðum þessa árs höfðu Sameinuðu þjóðirnar staðfest 10 þúsund brot og er raunverulegur fjöldi nær örugglega miklu hærri.
UNICEF hefur tekið saman yfirlit eftir mánuðum:
- Í janúar kostuðu átök, vergangur fólks og erfið vetrarskilyrði í norður- og austurhluta Sýrlands 32 börn lífið.
- Í febrúar voru fjölmargar árásir gerðar á meðferðarmiðstöðvar fyrir ebólusjúklinga í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og slíkar árásir héldu áfram út árið.
- Í mars létu 150 manns lífið, þar af 85 börn, í árás vopnaðra skæruliða á þorpið Ogossagou í Malí. Önnur árás í Sobanou-Kou kostaði 24 börn lífið til viðbótar.
- Í apríl létu 14 börn lífið og 16 særðust lífshættulega í sprengjuárás nærri tveimur grunnskólum í Sana‘a í Jemen. Þar í landi er einn af hverjum fimm skólum ónothæfur eftir árásir og átök.
- Í maí skoraði UNICEF á stjórnvöld vinda ofan af málum flóttamanna sem væru fastir í flóttamanna- eða fangabúðum í norðaustur Sýrlandi og koma þeim heim aftur. 28 þúsund erlend börn frá rúmlega 60 löndum, þar af rúmlega 20 þúsund frá Írak, eru föst í norðausturhluta Sýrlands.
- Í júní voru þrjú börn notuð til að gangsetja sprengjur sem urðu 30 manns að bana og særðu 48 í félagsmiðstöð þar sem fólk hafði komið saman til að horfa á fótbolta í Konduga í Nígeríu. Á fyrstu tveimur vikum júní var tilkynnt um að 19 börn hefðu látið lífið í mótmælum í Súdan og 49 særst.
- Í júlí særðist hópur barna í sprengjuárás á skóla í Kabúl í Afganistan. Síðar í sama mánuði var 32 börnum veitt lausn undan hermennsku stríðandi fylkinga í Suður-Súdan. UNICEF áætlar samt að þúsundir barna séu enn notuð í hermennsku hinna ýmsu stríðandi hópa í landinu.
- Eina helgi í ágúst létust 44 óbreyttir borgarar, þar af 16 börn og 12 konur, í loftárás í norðvesturhluta Sýrlands.
- Í september greindi UNICEF frá því að tvær milljónir barna í Jemen væru utan skóla.
- Í október gerðu Tyrkir innrás í norðausturhluta Sýrlands og létu fimm börn og særðust 26 í árásunum. Þar með höfðu 657 börn látið lífið í Sýrlandi á fyrstu níu mánuðum ársins 2019. Hundruð til viðbótar særst.
- Í nóvember greindi UNICEF frá því að þrjú ár af átökum og óstöðugleika í norðvestur og suðvesturhluta Kamerún hefði gert það að verkum að nú væru 855 þúsund börn ekki lengur í skóla og 59 þúsund ungmenni á vergangi.
- Í byrjun desember létu fimm börn lífið eftir að árásarmenn hófu skothríð í bænahúsi í Búrkína Fasó. Í austurhluta Úkraínu var greint frá því að 36 árásir hefðu verið gerðar á skóla í ár. Þar af hafði einn skóli verið skemmdur fimmtán sinnum.
- Um miðjan desember greindi UNICEF svo frá stöðu barna í Afganistan í nýrri skýrslu þar sem kom meðal annars fram að níu börn væru drepin eða særðust að meðaltali á dag á fyrstu níu mánuðum ársins.
UNICEF ítrekar sem fyrr skýlausa kröfu sína um að stríðandi fylkingar, hvar sem þær eru í heiminum, virði skuldbindingar sínar samkvæmt alþjóðalögum og mannréttindalögum að vernda börnin, hætta að gera árásir á innviði sem eru þeim mikilvægir eins og skólar, spítalar og vatnsveitur. Þá kallar UNCIEF eftir því að aðrar þjóðir beiti áhrifum sínum í þágu friðar og verndar barna.
Í öllum þessum löndum starfar UNICEF með samstarfsfélögum við að veita þessum saklausu, varnarlausu og viðkvæmu börnum heilbrigðisþjónustu, næringu, menntun og vernd.
Þú getur stutt það starf með því m.a. að gerast Heimsforeldri. Nánari upplýsingar um það má finna hér.


