24. október 2005

Börn á afskekktum svæðum í Pakistan enn í hættu

Það er kapphlaup við tímann að bjarga lífi þeirra fjöldamörgu barna sem eru hjálparþurfi á afskekktum svæðum í fjalllendi Pakistan þar sem jarðskjálftinn reið yfir fyrir tveim vikum.

Það er kapphlaup við tímann að bjarga lífi þeirra fjöldamörgu barna sem eru hjálparþurfi á afskekktum svæðum í fjalllendi Pakistan þar sem jarðskjálftinn reið yfir fyrir tveim vikum.

Þyrlur koma daglega með særð börn á bráðabirgðasjúkrahúsið í Muzaffarabad í Kashmír-héraði. Sum eru vafin inn í rök teppi og mörg þeirra þjást af slæmum sýkingum.

Samkvæmt læknum eru algengustu meiðslin brotin bein, skurðir og höfuðáverkar. Mörg barnanna þjást einnig af hungri og vökvaskorti. Um 300 aðgerðir eru framkvæmdar dag hvern á sjúkrahúsinu og nær helmingur þeirra eru aðgerðir á börnum. Stundum hafa nöfn þeirra og sjúkragreining verið hripuð á umbúðir þeirra til að auðvelda starfsfólkinu vinnu sína.

Komandi vetur er lífshættuleg ógn
Rigningar, snjókoma og kuldi munu nú ógna þeim sem lifðu af jarðskjálftann. Margar hjálparstofnanir óttast að þegar vetur gengur í garð muni þúsundir barna deyja af völdum kulda, ónógs skjóls, meiðsla og sjúkdóma. 

Um þrjár milljónir manna hafa orðið fyrir áhrifum af jarðskjálftanum og fjöldamörg börn hafa orðið viðskila við fjölskyldu sína. Fyrir viku síðan komst 11 ára drengur við illan leik til Muzaffarabad eftir að hafa ferðast hundruð kílómetra frá hafnarborginni Karachi til þess að leita að foreldrum sínum í fjöllunum.

UNICEF vinnur nú að því að skrá börn sem ekki eru í fylgd fjölskyldu sinnar og reyna eftir fremsta megni að koma börnum aftur til aðstandenda sinna. UNICEF hefur einnig hafið bólusetningarherferð gegn mislingum á jarðskjálftasvæðunum. Nauðsynlegar birgðir eins og tjöld, ábreiður, hlý föt, vatnstankar, næringarríkt prótínkex og vatnshreinsitöflur hafa nú náð til fjölda barna í neyð eftir skjálftann. Því miður eru þó enn svæði sem ekki hafa fengið næga aðstoð.

Við viljum minna á söfnunarreikning UNICEF Ísland fyrir fórnarlömbum jarðskjálftans, 101-26-102040. Einnig er hægt að leggja inn framlag hér á síðunni.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn