Hvaða börn eru líklegust til að líða efnislegan skort á Íslandi, hvað hefur sérstaklega áhrif og hvað skortir börn helst? Miðvikudaginn 20. janúar kl 9:00-10:30 kynnir UNICEF á Íslandi nýja skýrslu um börn sem líða efnislegan skort hér á landi. Hagstofa Íslands greindi gögnin í skýrslunni með svokallaðri skortgreiningu UNICEF.
Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi kynnir niðurstöður skýrslunnar og Kolbeinn Stefánsson, sérfræðingur á Hagstofu Íslands lýsir aðferðafræðinni sem notuð var. Þátttakendur í pallborðsumræðum eru Anni Guðný Haugen, lektor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og Ingibjörg Broddadóttir, sérfræðingur á skrifstofu félagsþjónustu í velferðarráðuneytinu.
Fundarstjóri er Daði Már Kristófersson, forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Kynningin fer fram í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands, Suðurgötu 41, og er öllum opin.

