19. mars 2018

„Börn eru ekki bara framtíðin, þau eru nútíðin“

Í dag, 19. mars 2018, undirrituðu átta nýjir þingmenn úr öllum flokkum yfirlýsingu þess efnis að þeir myndu skuldbinda sig til að hafa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í störfum sínum á þinginu. Með undirrituninni gerðust þessir átta þingmenn talsmenn barna á Alþingi og munu leitast við að tileinka sér barnvæn sjónarmið og hafa hagsmuni barna að leiðarljósi.

Í dag, 19. mars 2018, undirrituðu átta nýjir þingmenn úr öllum flokkum yfirlýsingu þess efnis að þeir myndu skuldbinda sig til að hafa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í störfum sínum á þinginu. Með undirrituninni gerðust þessir átta þingmenn talsmenn barna á Alþingi og munu leitast við að tileinka sér barnvæn sjónarmið og hafa hagsmuni barna að leiðarljósi.

Til að undirbúa sig undir þetta mikilvæga hlutverk sóttu þingmennirnir námskeið þar sem fulltrúar ungmennaráða Barnaheilla og UNICEF auk ráðgjafahóps umboðsmanns barna kynntu þeim ákvæði Barnasáttmálans og hvernig hann nýtist við ákvarðanatöku og stefnumótun.

Það voru ungmennaráð UNICEF, Barnaheilla og ráðgjafahópur umboðsmanns barna, sem stýrðu undirrituninni á Alþingi í dag og ávörpuðu þingmenn. Ungmennin óskuðu nýjum talsmönnum barna til hamingju með þetta nýja og mikilvæga hlutverk og lögðu áherslu á mikilvægi þess að þingmenn hlusti á raddir barna og átti sig á því að börn eru ekki bara framtíðin, þau eru nútíðin.

Hver flokk­ur til­nefn­ir einn aðal­mann og einn vara­mann. Eft­ir­tald­ir þing­menn eru tals­menn barna á yf­ir­stand­andi þingi:

Flokk­ur fólks­ins
Aðalmaður: Inga Sæ­land
Varamaður: Guðmund­ur Ingi Krist­ins­son

Fram­sókn­ar­flokk­ur
Aðalmaður: Lín­eik Anna Sæv­ars­dótt­ir
Varamaður: Will­um Þór Þórs­son

Miðflokk­ur
Aðalmaður: Gunn­ar Bragi Sveins­son
Varamaður: Anna Kol­brún Árna­dótt­ir

Pírat­ar
Aðalmaður: Jón Þór Ólafs­son
Varamaður: Björn Leví Gunn­ars­son

Sam­fylk­ing
Aðalmaður: Odd­ný G. Harðardótt­ir
Varamaður: Ágúst Ólaf­ur Ágústs­son

Sjálf­stæðis­flokk­ur
Aðalmaður: Bryn­dís Har­alds­dótt­ir
Varamaður:

Viðreisn
Aðalmaður: Þor­steinn Víg­lunds­son
Varamaður: Hanna Katrín Friðriks­son

Vinstri Græn
Aðalmaður: Andrés Ingi Jóns­son
Varamaður: Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir

Barnaheill, umboðsmaður barna og UNICEF á Íslandi eiga hugmyndina að því að skipa talsmenn barna. Var það gert í fyrsta skipti árið 2014.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn