04. janúar 2005

Börn hafa orðið illa úti í hamförunum í Asíu

Áætlað er að börn, sem þurfa á neyðaraðstoð að halda, séu nú um 1,5 milljónir. Mörg þeirra hafa misst foreldra sína eða hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar og þurfa nauðsynlega á umhyggju og stuðningi að halda. UNICEF áætlar að meira en einn þriðji þeirra sem létust í flóðunum hafi verið börn.

Áætlað er að börn, sem þurfa á neyðaraðstoð að halda, séu nú um 1,5 milljónir. Mörg þeirra hafa misst foreldra sína eða hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar og þurfa nauðsynlega á umhyggju og stuðningi að halda. UNICEF áætlar að meira en einn þriðji þeirra sem létust í flóðunum hafi verið börn.
Mat á fjárþörf við neyðaraðstoð er gerð í samræmi við stærra mat Sameinuðu þjóðanna, sem verður gert opinbert síðar í vikunni. Fjármagni verður varið til að:

• Veita börnum lífsnauðsynlegar bólusetningar

• Fara með birgðir af hreinu vatni til fólks og sjá fyrir grundvallarhreinlæti

• veita ungabörnum og þunguðum konum sérstaka næringu og bætiefni

• veita börnum áfallahjálp

• veita munaðarlausum börnum og börnum sem hafa orðið viðskila við fjölskyldu sína vernd og umhyggju

• sjá fyrir skólagögnum og uppbyggingu skóla til að tryggja að börn snúi aftur í skóla eins fljótt og auðið er.

Neyðaraðstoð á sviði heilsugæslu verður beint að því að koma í veg fyrir malaríu og veita sjúkum meðferð, koma í veg fyrir sjúkdóma vegna mengaðs vatns (kóleru, niðurgang, blóðkreppusótt), mislinga, stífkrampa og öndunarfærasýkingar. UNICEF mun veita lyf og sjúkragögn til yfir þriggja milljóna manna, þar á meðal þeirra 1,5 milljón barna á svæðunum.
Sjúkdómar sem smitast með menguðu vatni eru algengir í kjölfar hamfara og á þeim svæðum sem urðu fyrir flóðunum er vatnið mengað eftir eyðileggingu brunna og skolplagna. Fræðsla um hreinlæti skiptir miklu máli. UNICEF hefur þegar dreift fræðsluefni um hvernig best sé að þvo hendurnar við slíkar aðstæður og hvernig hægt sé að hreinsa vatnið, nota vatn skynsamlega (jafnvel sjó) við þvott og hvernig á að nota hreint vatn til drykkju og við eldamennsku.
Börn eru í mikilli hættu á vannæringu, bæði vegna prótín- og kaloríuskorts og vegna vítamíns- og steinefnaskorts. UNICEF mun hjálpa til við að setja upp miðstöðvar þar sem börn fá næringu og sérstaklega blönduð matvæli sem ætluð eru vannærðum börnum undir fimm ára, þunguðum konum og konum með barn á brjósti.

Enn fremur er mikilvægt að börn geti snúið aftur í skóla eins fljótt og auðið er svo að þau fái tilfinningu fyrir sínu daglega lífi aftur og komist yfir hið sálræna áfall sem mörg þeirra hafa þurft að þola. UNICEF mun veita skólagögn og setja upp tímabundna skóla fyrir börn á meðan verið er að endurbyggja skólana.

Hægt er að styðja sérstaklega við neyðaraðstoð UNICEF í Suður-Asíu og Afríku með því að fara inn á www.unicef.org og fylgja leiðbeiningum þaðan um hvernig þú getur lagt þitt af mörkum. Með því að gerast heimsforeldri styður þú einnig öll verkefni UNICEF, þar á meðal alla neyðaraðstoð sem UNICEF veitir. UNICEF hefur skilgreint neyðaraðstoðina í löndunum við Indlandshaf sem forgangsverkefni.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn