30. maí 2006

Börn safna handa börnum

Í tilefni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla fór fram söfnun í vikunni 15.-19.maí sem að stóðu nemendur og starfsfólk skólans til styrktar UNICEF. Söfnunarbaukur var í sal skólans alla vikuna og var vel gætt af nemendum skólans, en þeir sáu til þess að söfnunin færi vel fram. Hvatt var til þess að hver og einn kæmi með sem svarar 70 kr.

Í tilefni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla fór fram söfnun í vikunni 15.-19.maí sem að stóðu nemendur og starfsfólk skólans til styrktar UNICEF. Söfnunarbaukur var í sal skólans alla vikuna og var vel gætt af nemendum skólans, en þeir sáu til þess að söfnunin færi vel fram. Hvatt var til þess að hver og einn kæmi með sem svarar 70 kr., eina krónu fyrir hvert starfsár skólans. Söfnunin gekk með eindæmum vel og söfnuðust alls 64.138 kr.
Við hjá UNICEF þökkum kærlega fyrir þetta frábæra framtak og erum þakklát því hversu nemendurnir hugsuðu hlýtt til annarra barna sem eiga um sárt að binda í heiminum í dag. TAKK!

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn