08. október 2019

UNICEF flýgur með 1,6 milljónir skammta af bóluefni til Súdan

UNICEF hefur flutt 1,6 milljónir skammta af bóluefni við kóleru til Súdan. Á næstu dögum hefst bólusetningarátak til að berjast gegn útbreiðslu kólerufaraldurs sem upp kom þann 8. september síðastliðinn við Bláu Níl og Sennar héruð. UNICEF segir að bóluefnin komi á ögurstundu þar sem enn sé verið að tilkynna um ný tilfelli.

8. október 2019 UNICEF hefur flutt 1,6 milljónir skammta af bóluefni við kóleru til Súdan. Á næstu dögum hefst bólusetningarátak til að berjast gegn útbreiðslu kólerufaraldurs sem upp kom þann 8. september síðastliðinn við Bláu Níl og Sennar héruð. UNICEF segir að bóluefnin komi á ögurstundu þar sem enn sé verið að tilkynna um ný tilfelli.

Bóluefnið nú, sem gefið er í munn, er fjármagnað af Global Alliance of Vaccines (GAVI).

„Það er forgangsatriði hjá UNICEF að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kóleru í Súdan með því að bregðast skjótt við í meðhöndlun og afhendingu bóluefnis. UNICEF heldur áfram að vinna að vatnshreinsun í landinu, dreifa vatnshreinsivörum, veita tæknilega ráðgjöf og koma að skipulagningu aðgerða,“ segir í tilkynningu UNICEF.

Eins og margir vita er kólera smitnæmur og hættulegur sjúkdómur sem smitast oft með gerlamenguðu vatni og einkennist af kviðverkjum og stöðugum niðurgangi.

Víðs vegar um Súdan eru mannúðarteymi og sjálfboðaliðar að vinna að því að vekja athygli á hreinlætismálum og forvörnum gegn smiti með því að upplýsa íbúa um einkenni og orsakir kóleru sem og mikilvægi bólusetningar.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn