Börn sem eiga um sárt að binda á Filippseyjum þurfa alla þá vernd og aðstoð sem við getum veitt.
Í gær fengu börn í Tacloban, borginni þar sem fellibylurinn Haiyan olli hvað mestri eyðileggingu, bólusetningu gegn mislingum og mænusótt. Þar með er fyrsti hluti bólusetningarherferðar á vegum filippeyskra stjórnvalda, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og UNICEF, hafinn.
Bólusetningar eru mikilvægur hluti af neyðarhjálp UNICEF á svæðinu. Í bólusetningarherferðinni verða börnin jafnframt mæld og vigtuð til að greina hugsanleg tilfelli vannæringar og veita þeim börnum meðferð. Börnin fá líka skammt af A-vítamíni sem eflir ónæmiskerfi þeirra.
Þögul og hættuleg ógn við heilsu barna
Bólusetningarherferðin mun ná til yfir 30.000 barna og fer meðal annars fram í neyðarskýlum en er einnig sinnt af heilbrigðisstarfsfólki sem ferðast um svæðið.
Í herferðinni nú er sérstök áhersla lögð á að ná til yngstu barnanna.
„Börnin hér þurfa alla þá vernd og aðstoð sem völ er á,“ segir Angela Kearney sérfræðingur UNICEF í neyðaraðgerðum á Filippseyjum. „Sjúkdómar eru þögul en hættuleg ógn við heilsu barna. Við vitum hvernig má koma í veg fyrir þá og gerum allt sem við getum til að vernda heilsu barna sem nú eiga um sárt að binda.“
Talsmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segir að þrátt fyrir gríðarlega eyðileggingu og erfiðar aðstæður, sé það merki um góðan árangur í hjálparstarfinu að aðeins tveimur og hálfum vikum eftir hamfarirnar sé bólusetningarherferð þegar hafin.
Neyðarsöfnun UNICEF fyrir börn á Filippseyjum er enn í gangi. Hægt er að leggja hjálparstarfi UNCEF lið með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 og styrkja þannig söfnunina um 1900 krónur.
