13. nóvember 2006

Borgarstjórn setur formlega sölu á rauðum nefjum af stað

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, ásamt allri borgarstjórn, lögðu sitt af mörkum í dag og keyptu rauð trúðanef. Með þessu opnaði borgarstjórn formlega söluna á rauðu nefjunum. Rauðu nefin koma í allar verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar ESSO í dag og kosta 500 krónur.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, ásamt allri borgarstjórn, lögðu sitt af mörkum í dag og keyptu rauð trúðanef. Með þessu opnaði borgarstjórn formlega söluna á rauðu nefjunum. Rauðu nefin koma í allar verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar ESSO í dag og kosta 500 krónur. Allur ágóði af sölunni rennur til verkefna UNICEF sem vinnur með bágstöddum börnum um allan heim. Nánari upplýsingar um Dag rauða nefsins á www.rauttnef.is.

Um leið hvöttu fulltrúar í borgarstjórn aðra landsmenn til að kaupa rauð nef, gerast heimsforeldrar og kaupa geisladisk Baggalúts, Brostu.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn