15. apríl 2020 Milljónir barna um allan heim eru í aukinni hættu á að verða fyrir netofbeldi nú þegar daglegt líf þeirra hefur í auknum mæli færst yfir í netheima vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Við þessu vara UNICEF og samstarfsstofnanir í tilkynningu í dag.
„Skjátími hefur aldrei í sögunni verið meiri en nú,“ segir Howard Taylor, forsvarsmaður Global Partnership to End Violence. „Skólalokanir og samkomubönn gera það að verkum að fjölskyldur treysta nú á tæknina og stafrænar lausnir til að halda börnum við efnið í námi, afþreyingu og til að halda sambandi við umheiminn. En börn skortir oft nauðsynlega kunnáttu, þekkingu og þroska til að varast hinar ýmsu hættur sem að þeim steðja í netheimum.“
Mikil tölvu- og netnotkun barna gerir þau eðlilega berskjölduð gagnvart þessum hættum. Ofbeldi, kynferðisleg misnotkun og einelti eru aðeins nokkrar af þessum hættum sem af netníðingum stafa. Þá óttast hópurinn að skortur á samskiptum milli fólks, augliti til auglits kunni að leiða til þess að pör og vinir taki aukna áhættu eins og með að senda myndefni sín á milli eða og að aukinn tími barna eftirlitslaus á netinu geri þau berskjölduð fyrir skaðlegu efni og neteinelti.
UNICEF hefur, í samstarfi við Global Partnership to End Violence Against Children, International Telecommunication Union (ITU), Menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna, Fíkniefna- og afbrotamálaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, WePROTECT Global Alliance, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og World Childhood Foundation USA, gefið út leiðbeiningar og tilmæli þar sem stjórnvöld, fjarskiptafyrirtæki, skólastarfsmenn og foreldrar eru hvattir til að vera á varðbergi, gera nauðsynlegar ráðstafanir og tryggja öryggi barna á meðan á aðgerðum vegna COVID-19 stendur.
„Í skugga COVID-19 hafa líf milljóna barna skroppið saman og einskorðast nú við heimili þeirra og skjái. Við verðum að vísa þeim veginn í þessum nýja raunveruleika,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í tilkynningu.
„Við hvetjum stjórnvöld og fyrirtæki til að taka höndum saman og tryggja öryggi barna og unglinga á netinu með auknum öryggisráðstöfunum og nýjum verkfærum sem hjálpa foreldrum og kennurum að mennta börnin í að nota Internetið á öruggan hátt.“
Bráðabirgðaaðgerðir sem lagðar eru til af hópnum má lesa í heild sinni hér.

