04. október 2019

Unicef á Íslandi minnir á mátt barna í mögnuðu myndbandi

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna fagnar um þessar mundir þrjátíu ára afmæli sínu og af því tilefni hefur UNICEF á Íslandi útbúið magnað myndband sem er þörf áminning um hversu mikill máttur barna getur verið.

4. október 2019

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna fagnar um þessar mundir þrjátíu ára afmæli sínu og af því tilefni hefur UNICEF á Íslandi útbúið magnað myndband sem er þörf áminning um hversu mikill máttur barna getur verið.

Við lifum á tímum þar sem börn eru í vaxandi mæli að láta til sín taka, láta rödd sína heyrast og grípa til aðgerða sem eftir er tekið. Réttur barns til að láta skoðanir sínar í ljós til að hafa áhrif er einmitt ein af grundvallargreinum Barnasáttmálans. Og börn geta vel knúið áfram samfélagslegar breytingar. Það sýna dæmin og það er umfjöllunarefni myndbands UNICEF á Íslandi.

Í myndbandinu fékk UNICEF leikkonuna ungu Ísey Heiðarsdóttur (Víti í Vestmannaeyjum) til liðs við sig til að rifja upp hin ýmsu afrek barna á umliðnum árum. Allt frá umhverfisvakningu Gretu Thunberg til baráttu skólabarna í Hagaskóla gegn brottvísun skólasystur sinnar.

Afrek sem kannski aldrei hefðu orðið ef þau hefðu ekki fundið sig knúin til að gera eitthvað og látið rödd sína heyrast.

Á tímum þar sem margir vilja afskrifa, þagga niður í eða gera lítið úr skoðunum barna og ungmenna er myndbandið að okkar mati þörf áminning um að stundum ber okkur sem eldri eru bara að setjast niður, hlusta og spyrja okkur síðan: Hvað ætla ég að gera?

Þú getur séð myndbandið á YouTube-síðu UNICEF á Íslandi með því að smella HÉR.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn