31. október 2019 Áætlað er að níu þúsund manns, þar af helmingur börn, haldi nú til í Bardarash-flóttamannabúðunum í kúrdíska héraðinu í norðurhluta Íraks. UNICEF hefur sagt sögur foreldranna og barnanna sem flúðu innrásina í norðausturhluta Sýrlands í leit að öryggi í byrjun október. Einnig því ótrúlega starfi sem UNICEF vinnur við erfðar aðstæður í búðunum.
UNICEF á Íslandi stendur nú fyrir neyðarsöfnun fyrir þessi 80 þúsund börn sem neyddust til að flýja heimili sín í norðaustur Sýrlandi. Neyð þeirra er mikil og þau eru þjökuð af bæði líkamlegum og andlegum raunum þess sem gerst hefur.
Á dögunum lauk þjóðarátaki UNICEF, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og heilbrigðisráðuneytis Íraks í bólusetningu barna undir 15 ára aldri gegn mænusótt. Í síðustu viku fóru teymi á vegum UNICEF um Bardarash-búðirnar við landamæri Íraks og Sýrlands og bólusettu börn gegn mænusótt og mislingum. Hátt í þrjú þúsund börn fengu þar lífsnauðsynleg bóluefni.
Hér eru nokkur barnanna sem fengu bólusetningu og fá nú umönnun og aðstoð frá UNICEF þökk sé þeim sem styrkja UNICEF.
Narin er 7 ára sýrlensk stúlka og er hér fyrir ofan að fá bóluefni við mænusótt í Bardarash-búðunum líkt og þúsundir annarra barna.
Hin 5 ára gamla Shelan, á myndinni hér fyrir ofan, leikur sér í tjaldi eftir að hafa verið bólusett. UNICEF setur upp barnvæn svæði í búðunum þar sem börn geta fengið að vera börn og leikið sér áhyggjulaus. Þau fá sálrænan og félagslegan stuðning og kennslu.
Hin 4 ára gamla Noor var mjög dugleg og fékk mænusóttarbóluefni hjá starfsmanni UNICEF.
Hin 10 ára gamli Azhin og systir hennar eru hér fyrir utan tjald fjölskyldunnar í Bardarash-búðunum.
Þessi börn sem önnur í stríðshrjáðu Sýrland eiga sér sögu. Við getum ekki leyft okkur að hætta að hlusta. Hringdu í síma 562-6262 til að heyra sögu. Það eina sem þú þarft að gera er að hlusta. Síðan þarftu að hjálpa.
- Sendu sms-ið STOPP í númerið 1900 og styrktu neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi um 1.900 krónur.
- Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950
- Nánari upplýsingar um hvernig þú getur hjálpað börnum í Sýrlandi hér.





