22. desember 2017

Brian Pilkington ánægður með jólasveinana

Sú staðreynd að jólasveinarnir geti hjálpað bágstöddum börnum um jólin, með því að gefa Sannar gjafir, veitir mér mikla gleði.

Íslensku jólasveinarnir hafa verið þekkt­ir fyr­ir stríðni og pretti. Síðustu jólin hafa þeir bræður þó tekið sig á og gert góðverk fyrir jólin, í samstarfi við UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Jólasveinarnir hafa hjálpað UNICEF að koma hinum ýmsu hjálp­ar­gögn­um til barna í neyð – svokölluðum Sönn­um gjöf­um.

Uppistaðan í jólaátaki UNICEF á Íslandi eru myndir Brian Pilkingtons af íslensku jólasveinunum sem hann teiknaði á nýjan leik með hin ýmsu hjálpargögn í höndunum sem jólasveinarnir völdu sér sjálfir. Stúfur ákvað til dæmis að gefa börnum í neyð námsgögn og Þvörusleikir útvegaði börnum ormalyf.

Brian Pilkington segist vera mjög ánægður með bræðurnar:

„Sú staðreynd að jólasveinarnir geti hjálpað bágstöddum börnum um jólin, með því að gefa Sannar gjafir, veitir mér mikla gleði. Það er mjög í anda jólanna og á sama tíma uppfyllir margar af grunnþörfum barna í heiminum“ segir hann, ánægður með viðtökurnar.

Hægt er að fylgjast með góðverkum jólasveinanna á mbl.is, þegar þeir koma til byggða einn af öðrum.

Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg hjálpargögn fyrir börn í neyð. Þær eru stórsniðugar jólagjafir og jólakort fyrir vini og fjölskyldu, en hægt er að kaupa hjálpargögn á borð við vítamínbætt jarðhnetumauk, hlý teppi, bóluefni gegn mænusótt og skóla í kassa, svo fátt eitt sé nefnt. Jólasveinarnir og UNICEF sjá síðan um að koma gjöfunum til skila til barna sem þurfa á hjálp að halda.

Bóluefni Skyrgáms:

Mislingar eru bráðsmitandi og grafalvarleg veirusýking sem kostar tugþúsundir barna lífið á hverju ári. Við neyðaraðstæður er mjög mikilvægt að bregðast strax við og bólusetja börn til að koma í veg fyrir mislingafaraldur, en það er eitt af forgangsatriðum UNICEF. Bóluefnið sem Skyrgámur sér um að útvega kemur í veg fyrir að börn smitist af þessari lífshættulegu sýkingu. Einn skammtur af bóluefni gegn mislingum kostar ekki nema um 36 krónur!

Pottaskefill valdi vatnshreinsitöflur sem galdra fram drykkjarhæft vatn:

Milljónir barna hafa ekki aðgengi að hreinu drykkjarvatni eins og við erum vön hér heima. Pottaskefill vill breyta þessu og mun fyrir jólin útvega vatnshreinsitöflur sem verða sendar á svæði þar sem hreint vatn er af skornum skammti. Þessar bráðsniðugu vatnshreinsitöflur geta á örskotsstundu galdrað fram drykkjarhæft vatn úr óhreinu vatni og með því komið í veg fyrir útbreiðslu lífshættulegra smitsjúkdóma.

Stúfur vill að öll börn fái að læra:

Stúf­ur er minnst­ur bræðra sinna og er mikið í mun að öll börn fái tæki­færi til að fara í skóla. Því er UNICEF sammála, enda menntun eitt öflugasta vopnið gegn fátækt og hungri. Námsgögn UNICEF nýtast sérstaklega vel á svæðum þar sem stríð eða náttúruhamfarir hafa raskað skólastarfi, en þá leggur UNICEF allt kapp í að tryggja að öll börn hafi tækifæri til að halda áfram að læra.

Það tekur enga stund að versla jólagjafirnar í vefverslun UNICEF, www.sannargjafir.is. Einnig er hægt að kíkja á skrifstofu UNICEF á Íslandi á Laugavegi 176 og velja gjafir á staðnum.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn