05. ágúst 2004

Brjóstagjöf gæti bjargað lífi 1,3 milljóna barna

UNICEF hefur tekið höndum saman við 120 lönd víðsvegar í heiminum um að halda upp á alþjóðlega viku brjóstagjafar, sem hófst þann 1. ágúst síðastliðinn.

UNICEF hefur tekið höndum saman við 120 lönd víðsvegar í heiminum um að halda upp á alþjóðlega viku brjóstagjafar, sem hófst þann 1. ágúst síðastliðinn.
Brjóstagjöf er hin fullkomna leið til þess að gefa ungbörnum hvað besta næringu á fyrstu sex mánuðum lífs þeirra. Mjólkin verndar einnig börnin frá lífshættulegum kvillum eins og niðurgangi.
Ef öllum börnum væri gefin brjóstamjólk frá fæðingu að sex mánaða aldri er áætlað að lífi 1,3 milljón ungbarna gæti verið bjargað á hverju ári.
Markmið alþjóðlegrar viku brjóstagjafar er að bæta næringu ungbarna með því að gefa konum færi á að:
-velja brjóstamjólk sem næringu fyrir börn sín
-halda áfram brjóstagjöf til barna sinna, ásamt annarri fæðu, vel inn í annað aldursár barnanna
Góð næring til handa börnum er grunnurinn að heilbrigðri framtíð. Alþjóðleg vika brjóstagjafar er vikuna 1. – 7. ágúst.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn