01. desember 2006

Bylgjan brosir með UNICEF - Þátttaka fyrirtækja á Degi rauða nefsins

Bylgjan brosir með UNICEF á Degi rauða nefsins 1. desember og er með brandara-átak fyrir fyrirtæki og vinnustaði. Þetta er kjörið tækifæri fyrirtækja til að leggja átakinu lið og styrkja bágstödd börn víða um heim.

Bylgjan brosir með UNICEF á Degi rauða nefsins 1. desember og er með brandara-átak fyrir fyrirtæki og vinnustaði. Þetta er kjörið tækifæri fyrirtækja til að leggja átakinu lið og styrkja bágstödd börn víða um heim. Bylgjan og UNICEF hvetja alla til að taka þátt og lyfta vinnuandanum í mesta skammdeginu um leið og góðu málefni er lagt lið. Hringið í síma 567 1111 og tilkynnið þátttöku.

Fjáröflunarátak
Um er að ræða brandara- og fjáröflunarátak þar sem einstaklingar-, fyrirtæki og vinnustaðir senda inn einn brandara sem yrði spilaður þangað til annað fyrirtæki yfirbýður hann til að fá sinn brandara í loftið. Það er annað hvort hægt að kaupa leikinn brandara eða hringja inn og segja eigin brandara í símann.

Hvernig fer ég að?
Hringir í síma 567-11 11 og skráir þig til leiks með fyrirfram völdum brandara.
Skráning fer fram á brandaranum þínum - hvort sem um ræðir leikinn brandara eða eigin brandara.

Við bendum einnig á að ...
Fjölmörg fyrirtæki hafa tekið vel í átakið og kaupa rauð nef í hundraða tali á starfsmenn sína. Það ætti því að vera glatt á hjalla á mörgum vinnustöðum á föstudaginn eða í jólagleðinni. Við hvetjum enn fleiri fyrirtæki til að hafa samband við okkur í síma 821 8121 til að panta rauð nef. Allur ágóði af sölu nefjanna rennur til verkefna UNICEF.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn