Upplýsingasíða

UNICEF á Íslandi um Covid-19

Hér finnur þú fræðsluefni fyrir börn, unglinga og fullorðna. Afþreyingarefni og upplýsingar um hvað UNICEF er að gera í baráttunni við heimsfaraldurinn í þágu þeirra sem minnst mega sín gegn honum. UNICEF er í framlínunni um allan heim að styðja við og vernda börn og fjölskyldur þeirra vegna COVID-19 og margvíslegra afleiðinga faraldursins.

Við þurfum að vera dugleg að minna okkur á að þetta er tímabil

Öflugt innanlandsstarf

UNICEF á Íslandi á tímum COVID

Við í innanlandsteymi UNICEF á Íslandi viljum minna á mikilvægi þess að nota barnaréttindanálgun á tímum COVID-19. Þrátt fyrir miklar áskoranir í samfélaginu þessa stundina megum við ekki gleyma að standa vörð um réttindi barna.

Nýverið sendum við póst á Réttindaskóla og Réttindafrístundir UNICEF sem og sveitarfélög sem vinna að því að verða Barnvæn sveitarfélög í þeim tilgangi að afla okkur frekari upplýsinga um hvað við gætum gert til þess að styðja betur við bakið á þeim á þessum erfiðu tímum.

Í ljós kom að það sem helst vantaði var efni um COVID-19 á öðrum tungumálum ásamt afþreyingar- og kennsluefni sem hægt væri að nota í heimakennslu. Við höfðum samband við skrifstofur UNICEF víða um heim og söfnuðum saman efni sem við sendum á sveitarfélögin og alla skóla á Íslandi. Við höfum einnig unnið að því að vekja athygli á mikilvægi tilkynningarskyldunnar á tímum sem þessum þar sem aukið álag á heimilum eykur líkurnar á ofbeldi gagnvart börnum.  

Við erum ákaflega þakklát ykkur öllum fyrir ykkar mikilvægu og óeigingjörnu vinnu:  

TAKK - Þið eruð öll frábær!

TAKK! Kennarar og starfsmenn skóla fyrir að standa vörð um réttindi barna samkvæmt 28. og 29. grein Barnasáttmálans með því að tryggja aðgengi að menntun með nýstárlegum aðferðum sem hægt er að nýta á tímum sem þessum. 

TAKK! Frístundaleiðbeinendur fyrir að standa vörð um réttindi barna samkvæmt 31. grein Barnasáttmálans með því að tryggja börnum aðgang að hvíld og tómstundum þrátt fyrir það ástand sem ríkir í samfélaginu.  

TAKK! Heilbrigðisstarfsfólk fyrir að standa vörð um réttindi barna samkvæmt 24. grein Barnasáttmálans með því að sjá til þess að þau hafi aðgang að heilsuvernd þrátt fyrir mikið álag á ykkur.  

TAKK! Starfsmenn sveitarfélaga og aðrir innan velferðarkerfisins fyrir að standa vörð um réttindi barna samkvæmt 19. grein Barnasáttmálans með því að gera ykkar besta til að vernda þau gegn ofbeldi og vanrækslu á erfiðum tímum.  

ÞIÐ ERUÐ ÖLL FRÁBÆR! 

Við þurfum að vera dugleg að minna okkur á að þetta er tímabil – einkennilegt og erfitt tímabil fullt af flóknum áskorunum– en saman þá getum við þetta. Ef við getum eitthvað gert til þess að styðja við bakið á ykkur með einhverjum hætti, ekki hika við að hafa samband og við munum gera okkar besta til þess að vera ykkur innan handar. Við erum öll saman í þessu.  

Styrktu baráttu UNICEF

gegn COVID-19

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, leiðir innkaup og dreifingu bóluefna til efnaminni ríkja heimsins fyrir hönd COVAX-samstarfsins en COVAX er samstarf um 190 ríkja sem tryggja á jafna dreifingu bólu­efnis gegn COVID-19. Markmið COVAX-samstarfsins er að tryggja um 2 milljarða skammta af bóluefni fyrir lok ársins 2021. UNICEF á Íslandi stendur fyrir fjáröflunarátakinu "Komum því til skila" . Hægt er að senda SMS-ið COVID í númerið 1900 (1900 krónur) og þar með tryggirðu dreifingu á bóluefni við COVID-19 fyrir þrjá einstaklinga i efnaminni ríkjum. Nánari upplýsingar hér