05. janúar 2005

Dæmi um kostnað í neyðaraðstoð

Oft gera einstaklingar sér ekki grein fyrir því hvað fjárstuðningur þeirra skiptir miklu máli og í hvað peningarnir eru nákvæmlega að fara. UNICEF hefur sett fram verðdæmi af hinum ýmsu þáttum neyðaraðstoðar. Af þessum dæmum má sjá hvað það kostar lítið að bjarga mannslífum og bæta líf þúsunda manna.

Oft gera einstaklingar sér ekki grein fyrir því hvað fjárstuðningur þeirra skiptir miklu máli og í hvað peningarnir eru nákvæmlega að fara. UNICEF hefur sett fram verðdæmi af hinum ýmsu þáttum neyðaraðstoðar. Af þessum dæmum má sjá hvað það kostar lítið að bjarga mannslífum og bæta líf þúsunda manna.

Fyrir tæpar 4 krónur er hægt að kaupa einn pakka af vatnsupplausn fyrir barn með vökvaskort og niðurgang, en það er dánarorsök fjölda barna í fátækari löndum þessa heims.

Tæpar 49 krónur geta keypt bóluefni gegn mislingum fyrir eina manneskju

Fyrir 74 krónur er hægt að bólusetja móður og barn gegn stífkrampa

Með 263 krónum er hægt að kaupa pensílínskammt fyrir eina manneskju

Fyrir 642 krónur er hægt að útvega einni fjölskyldu eldunarsett sem er sérhannað fyrir neyðaraðstæður

Fyrir 665 krónur er hægt að kaupa kassa af próteinríku kexi sem er sérstaklega ætlað í neyðaraðstoð

Fyrir 1,054 krónur er hægt að bólusetja barn gegn þeim sex helstu sjúkdómum sem ógna lífi barna í dag

Fyrir 2,480 krónur er hægt að kaupa ábreiður sem vernda 10 ungabörn frá næturkuldanum

Með 5,374 krónum er hægt að útvega tíu fjölskyldum vatnsbirgðir á fyrstu dögum neyðaraðstoðar

Fyrir 11,656 krónur er hægt að kaupa einn skólapakka sem tryggir 80 börnum grunnmenntun á neyðartímum

Fyrir 14,624 krónur er hægt að kaupa heilsupakka með öllum nauðsynlegum lyfjum og sjúkragögnum sem tryggir þúsund manns heilsugæslu í þrjá mánuði

Fyrir 15,500 krónur er hægt að kaupa eitt stórt tjald sem hægt er að nota þegar heimili hafa verið lögð í rúst

Með 26,681 krónu er hægt að útvega eitt tonn af næringu og bætiefnum fyrir börn

Fyrir 31,000 krónur er hægt að úvega nóg af A-vítamíni fyrir 16 þúsund börn, en A-vítamín getur komið í veg fyrir blindu og styrkt ónæmiskerfi barna

Með 65,563 krónum er hægt að útvega stórt tjald þar sem hægt er að setja upp heilsugæslumiðstöð eða spítala í kjölfar hamfara

Fyrir 105,400 krónur er hægt að útvega nóg af næringaríkum mat til að fæða 30 börn í 30 daga.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn