Bloggsíðan Dísukökur.is hefur notið mikilla vinsælda að undanförnu. Höfundur hennar er hin stórsniðuga Hafdís Priscilla Magnúsdóttir sem sérhæfir sig í uppskriftum sem eru lausar við hveiti og sykur.
Þær henta því þeim sem eru sykursjúkir, á lágkolvetnafæði eða langar einfaldlega að prófa eitthvað nýtt og hollara fyrir jólin.
Látum gott af okkur leiða í jólabakstrinum
Eftir að hafa séð fréttir af eyðileggingu og neyð á Filippseyjum í kjölfar fellibylsins í byrjun nóvember ákváðu Hafdís og Ágúst Ævar Guðbjörnsson, margmiðlunarhönnuður, að sameina krafta sína í þágu góðs málefnis. Úr varð uppskriftabókin „Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi“ sem inniheldur fjórtán, valdar uppskriftir af Dísukökur.is. Prentun.is í Hafnarfirði gáfu prentunina og á aðeins fáeinum dögum varð þessi fallega hugmynd að veruleika.
Uppskriftabókin kostar 990 krónur og öll sú upphæð rennur til neyðarsöfnunar UNICEF fyrir börn á Filippseyjum.
„Skilaboðin eru svolítið þau að láta gott af okkur leiða í jólabakstrinum,“ segir Hafdís.
„Markmiðið er að selja að lágmarki 1500 bæklinga fyrir aðfangadag og þannig leggja okkar af mörkum til að hjálpa börnum sem nú eiga um sárt að binda á Filippseyjum.“
Þessa fallegu uppskriftabók má nálgast hér.
Við hjá UNICEF erum Hafdísi, Ágústi og prentun.is innilega þakklát fyrir þetta frábæra framtak! Upp með svuntuna og allir að baka!
