28. desember 2005

Dúkkurnar komnar út á land

Dúkkur Kvenfélagasambands Íslands og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna eru nú komnar í sölu bæði á Akureyri og Egilsstöðum. Þegar hefur nær helmingur af 800 dúkkum selst og því hafa safnast 2 milljónir króna sem mun hjálpa stúlkum í skóla í Gíneu-Bissá. Vegna fjölda eftirspurna var dúkkunum komið í sölu úti á landi.

Sölustaðirnir eru nú Blómabær á Miðvangi, Egilsstöðum, Býflugan og blómið á Glerárgötu, Akureyri, Iða við Lækjargötu í Reykjavík og skrifstofa UNICEF á Íslandi að Laugavegi 42.

Hver dúkka kostar 5000 krónur og rennur ágóðinn til menntaverkefnis fyrir stúlkur í Gíneu-Bissá en þar er læsi meðal kvenna aðeins 24% og skólasókn stúlkna er 32%. Kvenfélagskonur um allt land hafa handgert dúkkurnar og skaffað allt efni í þær, auk þess að gefa vinnu sína. Aðalflutningar ferja dúkkurnar á milli staða.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn