12. desember 2019

Ósýnilegu börnin: Eitt af hverjum fjórum hvergi skráð

Þrátt fyrir að mikið hafi áunnist í fæðingaskráningu barna um allan heim og hún aukist um 20 prósent á áratug eru enn 166 milljónir barna undir fimm ára aldri óskráð. Óskráð börn eru berskjaldaðri fyrir margvíslegum hættum, ánauð og misnotkun

Þrátt fyrir að mikið hafi áunnist í fæðingaskráningu barna um allan heim og hún aukist um 20 prósent á áratug eru enn 166 milljónir barna undir fimm ára aldri óskráð. Óskráð börn eru berskjaldaðri fyrir margvíslegum hættum, ánauð og misnotkun og staðan því enn óásættanleg þegar eitt af hverjum fjórum börnum undir fimm ára aldri er hvergi skráð.

Þetta kemur fram í nýrri stöðuskýrslu UNICEF um markmiðið að skrá hvert barn fyrir árið 2030 sem ber yfirskriftina Birth Registration for Every Child by 2030: Are we on track? Í skýrslunni eru greind gögn frá 174 löndum.

„Þrátt fyrir að mikilsverður árangur hafi náðst þá er enn of mikið af börnum sem lenda milli skips og bryggju,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í tilefni af útgáfu skýrslunnar.

„Barn sem ekki er skráð við fæðingu er ósýnilegt. Það er ekki til í augum hins opinbera og laganna. Án fæðingarvottorðs geta börn farið á mis við menntun, heilbrigðisþjónustu og aðra nauðsynlega aðstoð. Þá eru þau berskjaldaðri gagnvart hvers kyns misnotkun eða ánauð,“ segir Fore.

Rekja má stærstan hluta þess árangurs sem náðst hefur í skráningu barna síðustu ár til Suður-Asíu, sérstaklega í Bangladesh, Indlandi og Nepal. Í Indlandi jókst hlutfall skráðra barna úr aðeins 41 prósenti árin 2005-2006 í 80 prósent árin 2015-2016. UNICEF hefur unnið með stjórnvöldum þar í að setja skráningu barna í algjöran forgang um allt land með tilheyrandi árangri.

Hvergi eru færri börn skráð en í Afríkuríkjunum Eþíópíu (3 prósent), Zambíu, (11 prósent) og Tjad (12 prósent).

Fram kemur í skýrslunni að þriðjungur allra þjóða þurfi að taka sig verulega á ef markmið um skráningu allra fæddra barna eiga að nást á næsta áratug. Ýmislegt stendur þar í vegi í viðkomandi löndum og ber þar helst að nefna skort á kunnáttu til að skrá fæðingu barns, slík skráning og fæðingarvottorð eru of dýr, sektargreiðslur eru víða við því að skrá börn of seint og því sleppa foreldrar því oft, vegalengdir að næstu skráningarskrifstofu eru of miklar og loks spila hefðir og venjur í viðkomandi löndum vitanlega sinn þátt.

Í skýrslunni er að finna ákall UNICEF um úrbætur og tillögur til að bæta öryggi allra barna. Þær eru:

  • Útvega öllum börnum fæðingarvottorð við fæðingu en 237 milljónir barna undir fimm ára aldri fá aldrei formlegt fæðingarvottorð.
  • Valdefla þarf alla foreldra til að skrá börn sín við fæðingu.
  • Tengja fæðingaskráningu við önnur kerfi viðkomandi þjóðar til að tryggja aðgang barna að grundvallarréttindum sínum.
  • Fjárfesta þarf í traustum tæknilausnum til að auðvelda og flýta fyrir fæðingaskráningu barna.
  • Virkja þarf samfélög til að krefjast fæðingaskráningar af stjórnvöldum sínum.

„Hvert einasta barn á rétt á nafni, þjóðerni, ríkisfangi og persónuauðkennum. Árangurinn sem náðst hefur eru vissulega góðar fréttir en við erum nýbúin að fagna 30 ára afmæli Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna og við megum ekki hætta fyrr en hvert einasta barn er talið með og skráð,“ segir Fore að lokum. Nálgast má skýrsluna í heild sinni hér á vef UNICEF.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn