18. júní 2004

EJS styrkir UNICEF

EJS, sem er einn stærsti þjónustuaðili og birgi landsins í upplýsingatækni, gaf nýlega Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna allan tölvubúnað í skrifstofu sína að Skaftahlíð 24 í Reykjavík.

EJS, sem er einn stærsti þjónustuaðili og birgi landsins í upplýsingatækni, gaf nýlega Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna allan tölvubúnað í skrifstofu sína að Skaftahlíð 24 í Reykjavík.

„Markmið UNICEF er fjáröflun fyrir þróunaraðstoð við börn og því er styrkur EJS gífurlega mikilvægur. Styrkurinn hefur hjálpað okkur að komast af stað en landsnefnd UNICEF hér á landi er nú um þriggja mánaða,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland. Hann bætir við að styrkurinn sé ekki síst mikilvægur fyrir þær sakir að nú renni þeir peningar sem landsnefnd UNICEF afli hér á landi beint til þeirra sem á þurfi að halda, það er til barna um allan heim, en ekki í tölvur og annan slíkan búnað. „Hann höfum við þegar fengið frá EJS, “ segir Stefán.

Guðbrandur Örn Arnarsson, markaðsstjóri EJS, segir það mikið ánægjuefni að veita UNICEF brautargengi. „EJS velur árlega eitt gott málefni og veitir rausnarlegan styrk. Við beinum öllum styrkumsóknum í þennan farveg vegna þess að við teljum að einn stór styrkur komi að betra gagni heldur en margir smærri,“ segir Guðbrandur.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn