27. desember 2019

Alltaf í skotlínunni: Ekki val heldur ófrávíkjanleg skylda að verja börnin

Eftir níu ár af stríði halda börn í Sýrlandi áfram að upplifa ólýsanlegt ofbeldi, áföll og þjáningar,“ segir Ted Chaiban, yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Átök hafa farið harðnandi í norðvesturhluta Sýrlands að undanförnu og sem fyrr eru það börn, sá hópur sem síst skyldi, sem bera þungan af því.

27. desember 2019 „Eftir níu ár af stríði halda börn í Sýrlandi áfram að upplifa ólýsanlegt ofbeldi, áföll og þjáningar,“ segir Ted Chaiban, yfirmaður UNICEF í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Átök hafa farið harðnandi í norðvesturhluta Sýrlands að undanförnu og sem fyrr eru það börn, sá hópur sem síst skyldi, sem bera þungan af því.

„Meira en 500 börn létu lífið eða særðust í átökum í norðvesturhluta Sýrlands á fyrstu níu mánuðum þessa árs,“ segir Chaiban og bendir á að desembermánuður nú hafi verið einstaklega blóðugur þar sem að minnsta kosti 65 börn hafi látið lífið eða særst.

Bardagar hafa undanfarið geisað í þéttbýlum svæðum Ma‘arat An-Nu‘man, sunnan Idlib-borgar, sem hafa neytt þúsundir fjölskyldna til að flýja heimili sín norður. Frá 11. desember hafa rúmlega 130 þúsund manns, þar af rúmlega 60 þúsund börn, flúið heimili sín í sunnanverðri Idlib, norðanverðri Hama og vestanverðri Aleppo vegna harðnandi átaka.

„Þessi fólksflutningar hafa sett aukið álag á gestgjafasamfélögin og yfirfullar neyðarbúðir,“ segir Chaiban. „Margar fjölskyldur hafa ekki enn fundið húsaskjól og sofa því undir berum himni.“

„Þessi harðnandi átök og vergangur fólks nú kemur á tíma þegar hitastig á þessum svæðum lækkar hratt, það rignir og flóð eru tíð. Börn sem búa í búðum og öðrum illa einangruðum húsakosti eru úrvinda eftir ótal ferðalög og flótta í kuldanum. Þau eru berskjölduð fyrir veikindum og dauða.“

Chaiban segir að viðhalda verði mannúðaraðstoð á svæðunum svo hægt sé að koma þessum hundruð þúsunda barna um norðvesturhéruðin sem og annars staðar í Sýrlandi til bjargar.

„Það verður að verja börn öllum stundum, líka á átakatímum. Það er ófrávíkjanleg skylda stríðandi aðila, ekki bara val hverju sinni. UNICEF krefst þess að stríðandi fylkingar leiti friðsamlegra úrlausna og setji börnin í fyrsta sætið í eitt skipti fyrir öll.“

Heimsforeldrar taka virkan þátt í baráttu UNICEF um allan heim og leggja sitt að mörkum svo UNICEF nái markmiðum sínum. Á Íslandi eru yfir 27.000 heimsforeldrar sem hjálpa UNICEF í verkefnum sínum með mánaðarlegum framlögum.

Þú getur skráð þig sem Heimsforeldri hér.

Fleiri
fréttir

21. október 2026

Minnst 12 börn drepin í árásum í Súdan
Lesa meira

20. október 2026

Vatnsveitur sem þjóna 1,6 milljónum barna í Jemen í hættu vegna átaka
Lesa meira

16. október 2026

Barnaæskan á Gaza snýst um baráttuna fyrir lífinu
Lesa meira
Fara í fréttasafn