Á hverjum degi flæðir vatn yfir ný svæði í Pakistan. Talið er að fjöldi þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á flóðunum sé nú orðinn um 20,5 milljónir. Í Sindh-héraði einu hefur fjöldinn aukist um nær 2,5 milljónir á síðustu þremur dögum. Meðal þeirra sem eiga um sárt að binda vegna hamfaranna eru um þrjár milljónir barna undir fimm ára aldri.
Samkvæmt nýjustu upplýsingum hafa um 1,8 milljón heimili skemmst eða eyðilagst. Um 1,2 milljón manns hafast við í yfir 5.600 skólabyggingum um allt land. Í Sindh-héraði, þar sem hamfarirnar hafa verið hvað mestar, eru um 1,3 milljónir manna í flóttamannabúðum á vegum stjórnvalda.
Mikil hætta á vannæringu
UNICEF hefur miklar áhyggjur af fjölda þeirra sem ekki hafa aðgang að ómenguðu drykkjarvatni. Um 72% heimila sem hafa orðið fyrir raski vegna flóðanna glíma við slíkan skort. Í yfir 80% tilvika hafa íbúar ekki aðgang að salerni með fullnægjandi frárennsli.
Allt að 40% þeirra heimila sem hafa orðið fyrir raski vegna flóðanna hafa glatað matarbirgðum. Ástandið er verst í Gilgit-Baltistan þar sem 80% heimila hafa nú engan mat. Að meðaltali fá börn á aldrinum eins til fimm ára 2,5 máltíðir á dag.
Styrkið hjálparstarfið
Ljóst er að enn ríkir mikil neyð í Pakistan. Starfsfólk UNICEF vinnur dag og nótt að því að koma börnum og fjölskyldum á flóðasvæðunum til hjálpar. Helsta hindrunin sem hjálparstarfið mætir er skortur á fjármagni.
Vert er að minna á að hægt er að styrkja neyðarstarf UNICEF í Pakistan með því að greiða inn á reikning 515-26-102040 (kt. 481203-2950). Einnig er hægt að hringja í síma 908-1000 (1.000 krónur), 908-3000 (3.000 krónur) eða 908-5000 (5.000 krónur). Loks er hægt að láta skuldfæra af kreditkorti hér.
