Erfðagjafir og minningarkort

Erfðagjafir

Að skilja eftir gjöf í erfðaskrá er falleg leið til að styðja við málefni sem þér er kært. Erfðagjafir til UNICEF eru okkur afar dýrmætar þar sem þær stuðla að því að við getum verið til staðar fyrir börn um ókomna tíð.

Erfðagjafir geta verið af öllum stærðum og oftast er um að ræða tiltekna upphæð eða prósentu af arfi eftir að séð hefur verið fyrir fjölskyldumeðlimum og ástvinum. 

Hægt er að nálgast upplýsingar um erfðagjafir, gerð erfðaskráa og störf UNICEF í erfðagjafabæklingnum okkar. Þú getur fengið bæklinginn sendan í tölvupósti eða bréfpósti með því að hafa samband í síma 552 6300 eða með því að senda tölvupóst á netfangið birna@unicef.is.

Minningarkort

Minningarkort eru falleg leið til að minnast þeirra sem eru látnir og heiðra minningu þeirra. Samúðarkveðjan er send á heimilisfang aðstandenda, vina eða annarra – en gjöfin sem henni fylgir fer beint í að bæta líf bágstaddra barna. Gjöfin er gefin í nafni þess látna og rennur til lífsnauðsynlegrar baráttu UNICEF í þágu barna um allan heim.

Vilt þú senda minningarkort?

Vinsamlegast hafðu samband við okkur í síma 552 6300 eða sendu okkur tölvupóst á netfangið unicef@unicef.is og við útbúum kortið fljótt og vel.

Til að útbúa kortið þurfum við eftirfarandi upplýsingar;

  • Nafn og kennitölu sendanda (þess sem greiðir)
  • Upphæð framlags
  • Nafn og heimilisfang viðtakanda (þess sem á að fá kveðjuna senda heim til sín)
  • Í minningu hvers framlagið er gefið

Við biðjum þig síðan að millifæra upphæðina sem þú vilt gefa í nafni hins látna á reikning UNICEF 701-26-102020, kt. 481203-2950 og skrifa „Minning“ í tilvísunina.