Í dag, á ársfundi UNICEF á Íslandi í Þjóðminjasafninu, tók Erna Kristín Blöndal við sem nýr stjórnarformaður landsnefndarinnar. Hún tekur við formennsku af Guðrúnu Ögmundsdóttur sem hefur gegnt embættinu frá árinu 2016 og verið alls 7 ár í stjórn. Guðrún lætur af embætti í stjórn UNICEF á Íslandi til að taka sæti í nýrri borgarstjórn Reykjavíkur.
Erna Blöndal er lögfræðingur og hefur samhliða doktorsnámi í lögfræði á sviði mannréttinda gegnt stöðu framkvæmdastjóra Norrænnar stofnunar um fólksflutninga. Sem stendur leiðir hún vinnu Velferðarráðuneytisins að endurskoðun félagslega kerfisins er varðar börn og fjölskyldur þeirra.
Erna er mikil baráttukona fyrir réttindum barna og hefur setið í stjórn UNICEF á Íslandi frá árinu 2017. Á síðasta ári ferðaðist hún til Bangladess og kynnti sér meðal annars starf UNICEF í flóttamannabúðum fyrir börn Rohyngja sem höfðu flúið ofbeldisöldu í heimalandi sínu Mjanmar.
Á ársfundinum tóku tveir nýir meðlimir sæti í stjórn, þær Guðrún Hálfdánadóttir og Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir. Guðrún er blaðamaður hjá Mbl.is og hefur fjallað mikið um málefni barna. Lilja Hrund er nýútskrifuð úr Verzlunarskóla Íslands og er fulltrúi Ungmennaráðs UNICEF í stjórn.
„Um leið og við hjá UNICEF á Íslandi bjóðum Guðrúnu og Lilju velkomna í hópinn og tökum á móti nýjum stjórnarformanni þá kveðjum við hana Guðrúnu Ögmundsdóttur með miklum söknuði. Við þökkum henni fyrir frábært starf og ómetanlegan stuðning í gegnum árin. Það hafa verið forréttindi að vinna með henni og við vitum að hennar miklu kostir og eldmóður munu nýtast vel á nýjum vettvangi,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
Nýja stjórn UNICEF á Íslandi sem tók við í dag skipa: Erna Kristín Blöndal, stjórnarformaður, Kjartan Ólafsson, varaformaður, Líney Rut Halldórsdóttir, Gunnar Hansson, Guðrún Hálfdánadóttir, Guðrún Nordal, Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, fulltrúi Ungmennaráðs, Sigríður Thorlacius og Styrmir Gunnarsson.
Stjórnarfólk UNICEF á Íslandi gegna störfum sínum í sjálfboðavinnu.
Ársskýrslu UNICEF á Íslandi má nálgast hér.



