30. október 2019 UNICEF á Íslandi sendir Íslendingum áskorun um að hlusta á börn í Sýrlandi með því að hringja í síma 562-6262. Á hinum enda línunnar heyrir þú sögu af raunverulegum atburðum og aðstæðum barna í Sýrlandi en sagan hefur vakið mikla athygli og fjölmarga til umhugsunar. Þorir þú að hlusta?
Fjölmargir Íslendingar hafa fengið inn um bréfalúguna, eða fundið á fjölförnum stöðum, dularfullt umslag með áskoruninni um að hringja í áðurnefnt símanúmer. Er uppátækið liður í því að UNICEF á Íslandi hefur nú blásið nýju lífi í neyðarsöfnun sína fyrir börn í Sýrlandi með óhefðbundnum hætti. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og eru Íslendingar að sýna að börnin í Sýrlandi eru ekki gleymd.
UNICEF hefur staðið vaktina í Sýrlandi síðan átök hófust þar árið 2011 við erfiðar aðstæður en nú er ný neyð aðkallandi eftir að Tyrklandsher réðst inn á landsvæði Kúrda þann 9. október síðastliðinn. 80 þúsund börn lentu á vergangi vegna þessa þegar þau flúðu heimili sín. Sá fjöldi er eins og öll börn á Íslandi, 17 ára og yngri. Neyð þessara barna er mikil þó árásum hafi linnt. Skortur á hreinu vatni, nauðsynjum, mat og lyfjum setur tugþúsundir barna og fjölskyldur þeirra í hættu. Hvert látið og slasað barn er einu of mikið.
„Við völdum að fara þessa óhefðbundnu leið því undanfarin ár hafa allir miðlar verið uppfullir af fréttum af „ástandinu í Sýrlandi“ og við skiljum að fólk getur upplifað eins konar neyðardoða þegar neyðin hefur staðið svona lengi yfir,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
„Við vildum með þessu virkja fólk til að sýna hluttekningu með börnum í Sýrlandi með því að stíga eitt aukaskref og sækja sér söguna sjálft. Með því að hringja í símanúmerið og hlusta á söguna erum við að sýna börnum í Sýrlandi að við erum ekki hætt að hlusta og að sögur þeirra og upplifun skiptir okkur máli,“ segir Bergsteinn.
UNICEF er að bjarga lífum í Sýrlandi og hefur náð ótrúlegum árangri við erfiðar aðstæður undanfarin ár. Ekkert af því hefði verið mögulegt án stuðnings frá almenningi, þar á meðal Íslendingum. Ný neyð ógnar nú því sem áunnist hefur. Látum það ekki gerast. Við þurfum að sýna börnum í Sýrlandi að þau skipta máli og við erum ekki hætt að standa vörð um þau, svo lengi sem þetta stríð varir.
Við megum aldrei hætta að hlusta. Því hvert barn í neyð á sér sögu. Hverju barni í neyð má bjarga.
- Til að styrkja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Sýrlandi sendu SMS-ið STOPP í númerið 1900. (1.900 kr.)
- Hægt er að leggja frjáls framlög inn á 701-26-102040 og kt. 481203-2950
- Nánari upplýsingar um hvernig þú getur hjálpað börnum í Sýrlandi hér.


