12. september 2019 Þrátt fyrir að ástandið í fæðuöryggismálum í Suður-Súdan hafi skánað lítillega frá því í júní síðastliðnum býr helmingur þjóðarinnar, 6,4 milljónir manna, enn við fullkomna óvissu um sína næstu máltíð.
Þetta kemur fram í nýrri IPC-flokkun (Integrated Food Security Phase Classification) sem gefin hefur verið út af stjórnvöldum í Suður-Súdan, Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), UNICEF og Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP). Þar er varað við því að 54 prósent íbúa Suður-Súdan búi við alvarlegt fæðuóöryggi og að bráðavannæring meðal barna sé nú komin yfir neyðarmörk.
IPC er alþjóðlegur fimm stiga skali sem notaður er til að skilgreina fæðuöryggisástand í löndum eða á tilteknum landsvæðum. Samkvæmt skýrslunni er áætlað að tíu þúsund manns í Suður-Súdan búi nú við fimmta og versta stig IPC-skalans, hungursneyð. 1,7 milljónir búi við neyðarástand, eða fjórða stig, og 4,6 milljónir við þriðja stigs neyð, skilgreint sem bráðaskortur á fæðuöryggi.
Þó ástandið í landinu sé víða slæmt hefur það þó skánað frá því sem var áður en friðarsamkomulag var undirritað í september 2018. Þá benda stofnanirnar á að aukinn pólitískur stöðugleiki hafi opnað leiðir fyrir neyðarastoð til handa þeim verst settu.
„Suður-Súdan gæti fljótt jafnað sig á neyðarástandinu og aukið verulega við matvælaframleiðslu sína með þessum stöðugleika og viðvarandi frið,“ segir Meshack Malo, fulltrúi Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna í Suður-Súdan. Stofnunin leggur meðal annars áherslu á að auka fæðuöryggi með því að aðstoða bændur við að setjast aftur að á jörðum sínum, koma undir sig fótunum og hefja framleiðslu á ný.
„Þessar IPC-niðurstöður eru þrátt fyrir það óhugnanlegar,“ segir Malo.
Bráðavannæring barna yfir neyðarmörk – Barátta UNICEF
Mohamed Ag Ayoya, fulltrúi UNICEF í Suður-Súdan varar við þeim hættum sem steðja að börnum í landinu. Bráðavannæring sé meðal annars áhyggjuefni.
Hlutfall bráðavannærðra barna undir fimm ára aldri hefur aukist frá því að vera 13 prósent í fyrra í 16 prósent í ár. Þessi aukning milli ára þýðir að bráðavannæring er komin upp yfir neyðarmörk sem miðast við 15 prósenta hlutfall. Áætlað er að árið 2020 muni 1,3 milljónir barna lifa við bráðavannæringu.
„Aukningin sýnir okkur hversu flókið viðfangsefni vannæring er en líka að það tekur mun lengri tíma að endurbyggja þjóð en rústa henni,“ segir Ayoya.
UNICEF og 40 aðrar stofnanir og samtök vinna að því að veita konum og börnum í Suður-Súdan þá næringaraðstoð sem þau þurfa. UNICEF styður hundruð hjálparmiðstöðva um allt landið og þökk sé stuðningi Heimsforeldra og styrktaraðila gat UNICEF á tímabilinu janúar til júlí 2019 veitt 144 þúsund börnum með alvarlega bráðavannæringu fyrsta flokks aðstoð og þjónustu. Rúmlega níutíu prósent þeirra barna náðu fullum bata.
Heimsforeldrar taka virkan þátt í baráttu UNICEF um allan heim, meðal annars í Suður-Súdan. Á Íslandi eru yfir 27.000 heimsforeldrar sem veita ómetanlegan stuðning og hjálpa UNICEF í verkefnum sínum.
Hægt er að skrá sig sem heimsforeldri hér: https://unicef.is/heimsforeldrar


